Efni
Ási og Hálsakot 16. júní 2007
Ási kom til landsins til að fagna 5 ára stúdentsafmælinu. Við gerðum okkur notalegan dag 16. júní, skoðuðum Hálsakot og komum við í kaffi hjá Gunnari Svanbergssyni.
Gengið niður með Glerá 9. apríl 2007
Ég gekk niður Glerárgil, frá göngubrú og niður undir sjó, í gullfallegu vorveðri að morgni 9. apríl. Þá datt þetta inn í vasavélina. Þarna er engu líkara en maður sé hominn óralangt frá mannabyggð.
Opið hús í AkureyrarAkademíu 12. maí 2007
Myndir teknar í opnu húsi í AkureyrarAkademíunni á kosningadegi 12. maí 2007.
Á sama tíma opnaði Kristín Kjartansdóttir sýningu sína á textaverki, byggðu á heimildum um Húsmæðraskólann, sem nú hýsir Akademíuna.
Rauðavík
Færeyjafarar 2008 hittust í Rauðuvík að kvöldi 27. september og rifjuðu upp ferðina í myndum. Fyrst var þó farið í gönguferð um bakkana norður af Rauðuvík og kíkt á kletta og skorur sem minntu á ferðina.
Snemmbúinn vetur í Hálsakoti
Nokkrar myndir frá því í dag, laugardaginn 3. október, og snjór kominn í Hálsakoti. Fór upp eftir með stigakjálka sem ég ætla að nota, það er fljótlegra en að smíða þetta sjálfur :)
Sunnudagskaffi í Hálsakoti
Ég bauð samstarfsfólki að koma í Háslakot og fá sér sunnudagssopann 27. september. Þar var múgur og margmenni og ég skemmti mér hið besta. Hér eru myndir af því.
Tröppur og frosin bláber
Þegar ég var búinn að smíða tröppurnar niður af pallinum vestanverðum og leit svo á berjalyngið eftir frost og smásnjó.
