Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Pallurinn tekur á sig mynd

14.08.2009 22:26 - 1915 lestrar

Til er fólk sem ekki er með Facebook. Ég hef gleymt því og fregnir úr Hálsakoti hafa verið strjálli hér en gott má telja. Hálsakot er indæll staður, þar er gott að vera, þar sef ég betur en annars staðar og þar hef ég verið meira og minna með annan fótinn eða báða í sumar.

Ég hef verið svo lánsamur að fá góðan meistara í að vinna með mér að því að smíða pall. Árni heitir hann Sigurðsson, en Stefán Sveinbjörnsson hefur með snilld sinni hlaðið með mér vegi og komið möl og undirstöðum palls á sína staði.

img_0110_450
Séð út um stofudyrnar

img_0114_450
Framhliðin. Þarna er pláss fyrir meiriháttar ball með grilli.

img_0115_450
Þetta er dálítið skekkt og sýnist hærra en það er, en myndin er samt góð :)

Í gær og í dag hafa Árni og Jói frá Rifkelsstöðum verið hjá mér og mikið hefur orðið úr verki. Búið að bolta og ganga frá öllum dregurum og staurum við pallinn, sem aðeins hefur vaxið í höndunum á okkur. Á myndunum hér má sjá hvernig þetta leit úr í dagslok. Þarna er búið að stilla upp fírtommunni sem klæðningin verður fest ofan á þarna fyrir framan húsið. Staurar eru enn mjög misháir og það á eftir að saga ýmsa enda, en þarna ætti að sjást í stórum dráttum hvernig þetta verður. Sumt af rýminu undir pallinum verður klætt af en annað nýtt sem útigeymslur eða útiskýli. Þetta verður allt talsvert miklu smekklegra en það sýnist svona í miðju kafi - en pallurinn er að verða staðreynd og það gleður mig ákvaflega.


Leggja orš ķ belg

08.02.2012 07:26
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.230, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur