Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Pallur klæddur

26.08.2009 21:07 - 1945 lestrar

Í morgun byrjaði ég að klæða pallinn í Hálsakoti. Reyndar var komið nærri hádegi þegar ég byrjaði á þessu, var fyrst að ganga frá festingum á undirlaginu. Timbrið er svolítið frjálslegt í vexti, misbreiðar fjalir og misblautar. Spurning hvernig þetta verður þegar það hefur jafnað sig. Ég reyni að leggja þetta mjög nákvæmlega með jöfnu bili og það má segja að maður þurfi að forma hverja spýtu eins og í bátasmíði. Við þetta verk varð til einn málsáttur: Ekki eru allar spýtur úr einu tré. En hér eru myndir:

img_0119_500 

Hér litið til aðaldyra. Þetta er hátt í 10 metra frá brún að dyrum.

img_0121_500

Í hina áttina.

img_0120_500

Og þarna gerði ég eitthvað sem ég hef ekki gert áður, tók mynd af mér með sjálftakara. Sem sagt þreyttur gervismiður að loknum vinnudegi. Meira siðar.


1

RE: Pallur klæddur

Edda - 27.08.2009 20:23
Þetta lítur rosalega vel út! Hlakka til að kíkja í kaffi næsta sumar og fá að sitja úti á palli;)

Leggja orš ķ belg

08.02.2012 07:18
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.229, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur