Mikið lán var að rekast á hana Hildi í Hagkaupum í gær. Hún benti mér á að Hymnodia ætlaði að syngja á tónleikum í listhúsinu í gömlu bræðslunni á Hjalteyri klukkan 6. Ég dreif mig heim, sló hálfan blettinn og skaust svo út eftir.
Efri hæðin á langa bræðsluhúsinu neðst á Hjalteyri var fyrir skemmstu gerð að listhúsi og ýmsir listamenn sýna þar ýmis verk. Umhverfið er heillandi, gamalt og veðrað, óeinangrað og sums staðar má sjá í gegnum ryðgað þakið. Rými sem hefur ótrúlegan sjarma, þarf að gera eitthvað fyrir, en má ekki vera mikið svo andinn skemmist ekki.
Hymnodia söng dagskrá með lögum og útsetningum íslenskra kvenna auk alþjóðlegra meistara og hljómurinn var ótrúlegur og seiðandi. Eftirómurinn í þessu langa húsi var mjög langur, en alls ekki til vansa, eins og í ónefndri kirkju syðra. Hérna lifði tónlistin, tónarnir skiluðu sér fullkomlega til áheyrenda og þennan óm þarf að hljóðrita. Kórinn söng hingað og þangað um húsið, uppi á háa stokknum, inni í honum og hér og hvar í vestara rýminu. Sumir voru hér og aðrir þar og uppsetningin var í sífelldri breytingu, svo myndatökumenn áttu fullt í fangi með að fylgja eftir. Áheyrendur voru líka á gangi um húsið og það var gaman að flakka um og heyra ómbrigði eftir því hvar maður var, nær eða fjær, handan veggja o.s.frv. Einnig þegar kórhlutarnir sungust á inni í stokknum og utan hans. Þetta var mögnuð upplifun.
Það var skemmtilegt að hlýða á sönginn, svo fjölbreytilegur sem hann var, svo dæmi sé tekið í réttri röð: Hear my Prayer eftir Purcell, Bogoroditse djevo eftir Rachmaninov og Martröð Hildigunnar Rúnarsdóttur. Og kannski var Martröðin langmagnaðasta verkið í þessu ótrúlega umhverfi. Og mikið má Eyþór Ingi vera glaður að hafa þetta hljóðfæri í höndunum - og kórfélagar hamingjusamir með að hafa hann fyrir skipstjóra.
Og mikið mega menn teljast heppnir ef hljómurinn í sölum Hofs, menningarhússins, sem farið er að minna mig á steinkassa í Austur-Berlín, nær áleiðis að vera eins og klangið í bræðslunni á Hjalteyri. Það má líka telja lán ef á Hofi verður hægt að fá jafngóða fiskisúpu og hjá Kaffi Lisu á Hjalteyri.

RE: Hymnodia á Hjalteyri
Hildigunnur - 11.08.2008 23:34 - hildigunnurr[hjį]talnet.is - hildigunnur.wordpress.comRE: Hymnodia á Hjalteyri
Hlynur Hallsson - 12.08.2008 09:20 - hlynur[hjį]gmx.net - hlynur.isTakk fyrir síðast Sverrir Páll og takk fyrir góðan pistil um frábæra tónleika!
Bestu kveðjur, Hlynur