Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Hagl eða salt

25.07.2009 19:07 - 1338 lestrar

Eftir prýðileg hlýindi sumarsins og mikla þurrka kom skyndilegt kuldakast, snjóaði til fjalla og allt það.

Í morgun tókum við Stefán til við að hlaða stórum steinum, flytja möl og koma fyrir rörum undir uppistöður pallsins í Hálsakoti. Þetta var afar ljúft, sólskin og fegurðin engu lík framan af, logn á polli og allt hvað heitir. Síðan tóku að dragast upp ský og hafgolunni var skyndilega startað og hún var fjandi köld. Svo tóku að sjást regnský og svartir bakkar inni í Eyjajarðardölum og þetta barst hægt og hægt út fjörðinn.

Eins og hendi væri veifað skall á okkur haglél. Þetta var gróft, það var engu líkara en sáð hefði verið grófu salti yfir allt. Þetta var svo þétt og mikið að þakrennan fylltist og það rann fram yfir hana. Þar sem ekki var renna var snjóhvít rönd af hagli meðfram húsinu. Bíllinn var eins og á vetrarmorgni.

Við hættum að vinna, enda liðið á dag, en skömmu síðar breytist úrkoman í venjulega rigningu, sem var mjög þörf gróðrinum, en hitinn var lágur þarna uppfrá, 4-5 stig, og það er náttúrulega ekki það besta fyrir gróðurionn. En þetta er bara stutt, það verður besta veður á morgun - eða hinn - eða hinn :)

img_0055_550

 

 

img_0074_550
 

 


Leggja orš ķ belg

08.02.2012 07:02
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.227, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur