Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

akureyri.net

21.07.2009 10:33 - 1899 lestrar

Núna á vordögum gengu ungir og áhugasamir menn til liðs við fréttavefinn akureyri.net og gerðu á honum afgerandi andlitslyftingu og hófu fréttaþjónustu af miklum móði, bæði ritaðar fréttir af málefnum sem tengjast Akureyri og næsta nágenni og síðan fréttaskot og annað efni í lifandi myndum. Ég verð að segja að mér þótti þetta afar vel gert hjá þeim og fygldist reglulega með. Þarna fóru jöfnum höndum almennar fréttir, fréttir af pólitík og þvi sem helst var að gerast í menningar- íþrótta- og afþreyingarmálum. Mér fannst þetta vera það sem hér vantaði, ekki síst af því að landsfjölmiðlarnir eru eiginlega hættir að þjóna landsbyggðinni. Ríkisútvarpið virðist forðast Norðuland, Mogginn er búinn að fella niður Akureyrarsíðuna og landsbygð hefur aldrei átt upp á pallborðið hjá Fréttablaðinu eða öðrum miðlum á þeim snaganum.

Þegar líða tók fram á sumar fannst mér að vísu fækka fréttum á akureyri.net og núna um daginn þegar ég brá mér til útlanda og ætlaði að fylgjast með því sem gerðist heima ef ég komst í tölvu var eins og væri búið að slökkva á vélunum. Ég bar mig aumlega upp við ritstjórana og komst að því að þeir eru báðir komnir til annarra starfa og akureyri.net orðið að frístundastarfi á ný. Ástæðan er sú, að mér skilst, að þessi frábæri og nauðynlegi fréttavefur, sem hefur notið mjög mikilla vinsælda miðað við notendatalningu hefur enga styrktaraðila. Það er að segja, það gengur  ekki neitt að fá auglýsingar á vefinn ef þarf að borga fyrir þær. Allir virðast vilja láta um sig getið en enginn tilbúinn að borga fyrir það. Það liggur í augum uppi að slíkur rekstur getur ekki gengið og til þess að geta sinnt svona merkilegum vef þarf að hafa starfsmenn sem geta fengið laun fyrir störf sín.

Einasta leiðin til að hægt sé að spýta lífi á ný í þennan gagnmerka fréttavef er að hagsmunaaðilar séu tilbúnir að auglýsa á honum eða styrkja hann með öðru móti. Ef það gerist ekki getum við ekki fengið að fylgjast á vef með því sem gerist þegar það gerist. Nútíminn ætlast til þess að sú þjónusta sé fyrir hendi. Og fjöregg akureyri.net er fólgið í höndum auglýsenda.


1

RE: akureyri.net

Helgi Hrafn Halldórsson - 21.07.2009 12:20 - helgi.me

Ég er fullkomlega sammála þér í þessum málum. Það hafa komið upp alskonar hugmyndir varðandi þennan vef. En vegna fjárskorts gengur það bara ekki upp.

Væri einhver forsenda fyrir því að bjóða einsatklingum upp á frjáls framlög?


2

RE: akureyri.net

Árni Viðar Björgvinsson - 21.07.2009 15:38 - hotmales4you[hjį]gmail.com
Eins mikið og ég er sammála þér, þá verður það nú að viðurkennast að það er ekki það margt að frétta frá Akureyri að þurfi heilan vef til. :)

3

RE: akureyri.net

Sverrir Páll - 21.07.2009 21:49 - svp[hjį]ma.is - svp.is
Þar er ég ekki sammála þér. Í svona stóru bæjarfélagi með allri þessari heilbrigðis-, mennta-, menningar-, ferðamála- og öryggisþjónustu, stærsta byggðakjarna utan suðvesturhornsins, er miklu meira fréttnæmt en miðlar hafa nokkru sinni enst til að fjalla um. Það þekki ég af störfum fyrir blöð og útvarp. En vefmiðill er viðbót og í eðli sínu er hann og á að vera öðru visi en hinir af því að hann getur gert grein fyrir tíðindunum jafnóðum og þau gerast. Þar er ekki biðtíminn eftir fréttatíma eða prentun. Vefur er samtímamiðill.

4

RE: akureyri.net

Árni Viðar - 22.07.2009 00:55

Ætlarðu að segja mér að það sé eitthvað nýtt að frétta frá Akureyri á hverjum einasta degi, oft á dag?

Ég bjó þarna í 27 ár, og bara get enganvegin verið sammála því. Það er varla hægt að segja með sanni að það sé hægt að framleiða eina nýja frétt á dag fyrir Reykjavík, hvað þá smáborg eins og Akureyri.


5

RE: akureyri.net

Sverrir Páll - 22.07.2009 07:08 - svp[hjį]ma.is - svp.is
Þessu trúi ég varla. Þegar ég var sumarmaður á Mogganum voru að jafnaði 6-8 fréttir daglega og Akureyrarsíðan ævinlega full. Voru þó jafnan færri tíðindi á sumrin en veturna. Svæðisnuddið (RÚVAK) hefur fréttatíma alla virka daga og það er mest frá Akureyri þótt svæðið eigi að heita Norðurland. En ég tek fram að þetta eru ekki allt ótíðindi, svik og skandalar, eins og landsmiðlarnir virðast helst vilja hafa í fréttum.

6

Titill vantar

Árni Viðar - 22.07.2009 22:13

Það má svosem vel vera að það séu alltaf sagðar fréttir daglega, en hversu mikið af þeim eru NÝJAR fréttir, en ekki bara sama fréttin og var sögð í gær, og í fyrradag, og daginn þar áður? :)


Leggja orš ķ belg

08.02.2012 06:59
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.226, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur