Ég grét af gleði þegar ég heyrði nýjasta sumarsmellinn frá Baggalúti, Saman við á ný. Það er ekki einasta að Bragi skáld setji saman texta sem sameinar á einum stað allt það sem felst í sumarsmellum sunnlenskra dægurlagasveita svo hver einasta lína snertir mann, heldur hefur Guðmundur tenór náð að fella rödd sína nær fullkomlega að röddum söngvara flestra þessara sveita og það er að sönnu Magnaður Hreimur. Ég kemst ekki hjá þvi að birta hér, algerlega í leyfisleysi, ljóð Baggalúts með skýringum hans sjálfs, en lagið má heyra hér: http://baggalutur.is/
SAMAN VIÐ Á NÝ
Laufléttur sumarsmellur
Baggalúts 2009
Baggalútur hefur sent frá sér glóðvolgan sumarslagara af gamla skólanum. Stuðst er við öll helstu einkenni hins ægigrípandi séríslenska hásumarsmells, til að ná fram sem sterkustum áhrifum og til að gera upplifun áheyrandans sem eðlilegasta og þægilegasta.
Textinn er byggður á nýfundnu kvæði dægurskáldsins Jónasar Hallgrímssonar „Saman vér hér á ný“ – sem talið er með elstu kvæðum höfundar. Er mál manna að hér gæti jafnvel verið á ferðinni nýtt „Stóð ég útí tunglsljósi“, sem var síðasti stóri smellur Jónasar.
Lagið er eftir Braga Breezer. Gummi Pelz syngur. Kalli Boeing og Kiddi Kweiz. radda. Stóri G þenur gítar. Kiddinatorinn refsar húðum. Siggi Jammæka kroppar bassa og farfísu. Kiddi 799 stýrði upptökum.
SAMAN VIÐ Á NÝ
Sitjum hér þú og ég
alltaf hér, enn á ný.
Förum saman út í geim
förum saman hér á ný.
Ekki fara frá mér hér
alltaf vera hér hjá mér.
Svífum saman þú og ég
saman hér, við á ný.
Því það er komið sumar
það er komið sól
þú ert hérna hjá mér
ég er hérna hjá þér
verum bæði saman
– saman hér á ný
saman, við á ný.
Hjartað brennur hér í kvöld,
verum saman tvö á ný.
Á stjörnufjöld við horfum á
saman þú og ég þér hjá.
Verum saman alltaf tvö,
ekki fara frá mér hér.
Fljúgum áfram saman nú.
Saman tvö, við á ný.
Og ég elska þig og bara þig
og aðeins þig og eina þig að eilífu
því ég veit að þú munt elska mig
og bara mig og bara mig að eilífu!
Ég held svei mér þá að sé ekki hægt að gera betur. Þetta er hið fullkomna sumarlag.
Takk, Baggalútur, takk!
