Á timabili var ég að velta fyrir mér að réttast væri að breyta nafni Hálsakots í Grjóttún, Grjótgarð, Steinholt eða Björg. Þetta var meðan við Stefán Sveinbjörnsson vorum að hlaða grjótagarðana við Hálsakot, sem eru að sumu leyti til skrauts og yndis en að öðru leyti til að hemja mölina sem er utan með húsinu og þar í eru svo undirstöður pallsins. Þetta var skemmtilegt verk og vannst furðurvel, Stefán lipur með vélarnar og ég reyndi að mjaka steinum til með járnkarli og moka möl að baki þeim með gömli malarskóflunni hans pabba. Og fylla svo í skörðin og fleyga í rifur.
Fyrst gerðum við vegginn við kjallaradyrnar. Hann er ágætis púsl og tókst vel, finnst mér. Sterklegur og fallegur.
Eftir svolítið hlé tókum við okkur svo til að hlóðum meira, garð sem er hæstur við innganginn að húsinu, hjá honum verðu farið upp á talsverðan malarpall, sem er ekki tilbúinn.
Garðurinn lækkar svo til vesturs en heldur jarðveginum að suðurhliðinni
og meginstoðunum undir stærsta fleti pallsins.
Þessi lági garður heldur
svo áfram allt að kjallaradyrunum og tengist þannig háa veggnum þar.
Síðan þetta var tekið er búið að koma fyrir öllum undirstöðum pallsins og steypa festingarnar. Í vikunni eftir Fiskidag á ég svo von á að fá Árna smið til að ganga frá burðarvirkinu og bolta þetta allt saman fast svo ég geti farið að sauma klæðninguna á pallinn. Það verður gaman.