Sverrir Páll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Páls Erlendssonar, kennara viđ Menntaskólann á Akureyri.

Efni

Tómatsúpa Benna

17.10.2006 10:27 - 2950 lestrar
1 lítri kjötsoð
1-2 allvænir laukar
15 hvítlauksrif
1 heildós niðursoðnir tómatar
- Egg - jafnmörg gestum
steinselja (fersk ef til er)
timian (ferskt ef til er)
cayane- eða chilipipar

Frönsk smábrauð eða ristað brauð - ostar

Laukurinn er saxaður og léttbrúnaður í góðri olíu. Settur út í kjötsoðið. Hvítlaukurinn smátt saxaður eða pressaður og settur út í soðið. Tómatarnir smátt saxaðir eða tættir í kvörn og settir með öllum sínum safa út í soðið. Kryddjurtir settar út í og bragðbætt með piparnum eftir smekk. Súpan á að vera snarpsterk.

Þetta allt látið krauma á vægum hita í a.m.k. 1½ - 2 tíma.

Þegar komið er að því að bera súpuna fram er hækkað undir henni og látið sjóða. Egg eru eitt og eitt varlega brotin og sett út í sjóðheita súpuna. Að loknum suðutíma (3-5 mín) eru þau veidd varlega upp með ausu og sett á disk ásamt súpu þannig að hver fái eitt óreglulegt egg á sinn disk.
Borðað með frönsku smábrauði eða ristuðu brauði og ostum. Kalt vatn eða hvítvín ellegar kælt létt rauðvín með.

 

Leggja orđ í belg

18.05.2012 20:59
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala ţín er 38.107.179.226, hún er rekjanleg.

:
Öryggiskóđi

Upp aftur