Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Gulrótasúpa að hætti Rúnars Marvinssonar

18.01.2009 22:39 - 782 lestrar - Orš ķ belg (0)

2 laukar
3 hvítlauksrif
vænn biti af engifer
kíló af gulrótum
salt
pipar ef vill

Grænmetið skorið og smjörsteikt.
U.þ.b. 2 lítrum af vatni bætt út í.
Soðið, smakkað til með salti, kannski pipar.
Maukað með töfrasprota eða matvinnsluvél.
Soðið aftur.
Borið fram með vænni slettu af sýrðum rjóma og smátt skornu Chili.
Borðað til ánægju og innri hita í skammdeginu.

BORSCHT - rśssnesk raušrófusśpa

17.10.2006 10:30 - 1894 lestrar - Orš ķ belg (0)
1 saxaður laukur
4 söxuð hvítlauksrif
450 g rauðrófur, skrældar og brytjaðar
2 stengur sellerí, brytjað
½ rauð paprika, brytjuð
125 g sveppir, saxaðir
1 stórt epli brytjað
2 msk smjör
2 msk sólblómaolía
2 l kjötsoð (vatn
bragðbætt með kjötkrafti)
1 tsk kumminfræ
timian
lárviðarlauf (1 stórt eða fleiri smærri)
sítrónusaf
salt
pipar 

Allt grænmeti sett í pott með ögn af vatni og soðið í 15 mínútur.

Krydd sett út í og soðið áfram í 5 mínútur.

Soðinu bætt út í og soðið í 30-45 mínútur.

Grænmetið sigtað frá og maukað með stöppu, hrærivél eða matvinnsluvél.

Stappan sett saman við soðið á ný.

Hrært, soðið um stund og bragðbætt með sítrónusafa, pipar, salti og timian eftir smekk.

Sett á disk og skreytt með rönd af hálfþeyttum rjóma eða sýrðum rjóma.

Frönsk hvķtlaukssśpa

17.10.2006 10:29 - 1638 lestrar - Orš ķ belg (0)
8 sneiðar af beikoni, skornar í bita
2 vænir laukar, þunnar sneiðar
20 hvítlauksrif, grófsöxuð
6 bollar af kjúklingasoði
½ bolli af þurru hvítvíni
1 lárviðarlauf
¼ tsk. af salti
4 ristaðar franskbrauðssneiðar
4 msk. af rifnum Parmesanosti
1 msk. af saxaðri steinselju

Steikið beikonið svo það verði stökkt og setjið í pott. Látið laukirnn og hvítlaukinn meyrna við lágan hita í 15 mínútur eða svo. Notið til þess u.þ.b. 1 matskeið af beikonfitunni.

Setjið laukinn og kjúklingasoðið, vínið, lárviðarlaufið og saltið í pottinn með beikoninu. Látið suðuna koma upp og síðan malla við lágan hita í hálftíma.Sskömmu áður en súpan er borin fram þarf að þekja hverja brauðsneið með einni matskeið af Parmesanosti og bregða brauðinu í ofn eða undir grill þar til osturinn bráðnar. Ausið súpunni í skálar eða á diska og setjið eina brauðsneið ofan á. Skreytið með steinselju.

Þessa uppskrift er ættuð frá Gilroy í Kaliforníu

Hvķtlaukssśpan kęra

17.10.2006 10:28 - 1650 lestrar - Orš ķ belg (0)

8-10 súputeningar (eða jafngildi þeirra af nautakjötskrafti)
8 bollar af soðnu vatni
15-20 stór hvítlauksrif (2-3 venjulegir hvítlaukar úr netpoka)
2 msk. smjör
2 msk. söxuð steinsela
1 msk, hveiti
¼ tsk. nýmulinn pipar
6 eggjarauður, hrærðar
6 litlar sneiðar af ristuðu brauði
Bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur

Setjið soðið vatnið í skál og leysið upp kjötkraftinn í því.

Takið utan af hvítlauknum og saxið hann smátt. Látið hann síðan ásamt steinseljunni krauma í smjörinu í potti við lágan hita. Gætið þess að þetta brenni ekki við. Bætið hveitinu út í og leyfið þessu að brúnast stundarkorn.

Hellið soðinu með kjötkraftinum út í pottinn, bætið piparnum út í og látið malla að minnsta kosti í hálftíma, jafnvel upp undir klukkutíma.

Rétt áður en súpan er tekin af hellunni, hellið eggjarauðunum smátt og smátt út í og hrærið varlega.

Setjið súpuna í eldfastar skálar, leggið eina brauðsneið með osti ofan á súpuna og bregðið þessu undir grill eða í snarpheitan ofn svo osturinn bráðni.

Uppskriftin er ætluð 6-8 manns.

(Þessi uppskrift er úr hvítlaukshéraðinu Gilroy í Kaliforníu)

 


Tómatsśpa Benna

17.10.2006 10:27 - 1797 lestrar - Orš ķ belg (0)
1 lítri kjötsoð
1-2 allvænir laukar
15 hvítlauksrif
1 heildós niðursoðnir tómatar
- Egg - jafnmörg gestum
steinselja (fersk ef til er)
timian (ferskt ef til er)
cayane- eða chilipipar

Frönsk smábrauð eða ristað brauð - ostar

Laukurinn er saxaður og léttbrúnaður í góðri olíu. Settur út í kjötsoðið. Hvítlaukurinn smátt saxaður eða pressaður og settur út í soðið. Tómatarnir smátt saxaðir eða tættir í kvörn og settir með öllum sínum safa út í soðið. Kryddjurtir settar út í og bragðbætt með piparnum eftir smekk. Súpan á að vera snarpsterk.

Þetta allt látið krauma á vægum hita í a.m.k. 1½ - 2 tíma.

Þegar komið er að því að bera súpuna fram er hækkað undir henni og látið sjóða. Egg eru eitt og eitt varlega brotin og sett út í sjóðheita súpuna. Að loknum suðutíma (3-5 mín) eru þau veidd varlega upp með ausu og sett á disk ásamt súpu þannig að hver fái eitt óreglulegt egg á sinn disk.
Borðað með frönsku smábrauði eða ristuðu brauði og ostum. Kalt vatn eða hvítvín ellegar kælt létt rauðvín með.

 

Kjśklingasśpa svp

15.10.2006 16:27 - 1939 lestrar - Orš ķ belg (2)

2 kjúklingabringur
1 ds kókosmjólk
1 ds vatn
kjötkraftur (½-1 tsk)
½-1 paprika
¼ blómkálshöfuð

Bringurnar þverskornar í fremur þunnar sneiðar. Kryddaðar með karríi og pipar. Brúnaðar í örlítilli olíu. Teknar af.

Kókosmjólkin sett á pönnuna. Vatnið líka og krafturinn. Grænmetið brytjað fremur smátt og sett út í. Suðan látin koma upp. Kjötið sett út í. Suðan látin koma aftur upp. Pottur tekinn af plötu og látinn standa í 10 mínútur.

Borða svo!

 


« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur