Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Einhvers konar sjómannalag - öllu heldur texti

16.04.2008 17:21 - 887 lestrar - Orš ķ belg (0)

Ég hef víða siglt og vegi marga ekið
og veröldina þekki næstum alla
og víðast eftir tækifærum tekið
en tæpast notið þess, það held ég varla,
því heima bíður dúllan mín, hún Dísa,
og draumur minn er hennar eina vísa:

Þó báturinn þinn brotni í spón
og brimið taki þig
og hendi þér um höfin, Jón,
þá hugsaðu bara um mig.

En þó að ég sé stundum hérna heima
og hagi mér þar næstum eins og maður
fer ósköp fljótt að toga í mig og teygja
að taka á rás – í burt – og verða glaður.
En heima bíður dúllan mín, hún Dísa
og draumur minn er bara þessi vísa:

Þó báturinn þinn brotni í spón
og brimið taki þig
og hendi þér um höfin, Jón,
þá hugsaðu bara um mig.

En innra í mér einhvers konar kraftur
ólgar, og hann snýr mér hendi styrkri.
Æ, kannski er best að koma aldrei aftur
og kúldrast hér í endalausu myrkri.
En heima bíður dúllan mín, hún Dísa
og draumur minn er þessi skrambans vísa:

Þó báturinn þinn brotni í spón
og brimið taki þig
og hendi þér um höfin, Jón,
þá hugsaðu bara um mig.

 

Vonandi er þetta mátulega væmið.
svp


Guttavísur (útdráttur)

06.04.2008 07:36 - 991 lestrar - Orš ķ belg (0)

Sögu vil ég segja stutta,
nú er sagan öll.


Vaxtarrækt

05.04.2008 19:39 - 882 lestrar - Orš ķ belg (0)
Alexander er ofandigur en örmjór neðan.
Þeim sem hafa sjaldan séð hann
sýnist allt í lagi með hann.

Á Spáni

05.04.2008 19:38 - 912 lestrar - Orš ķ belg (0)

Á Spáni menn hrópa oft "hasta-la!"

og höfuð sitt þvo upp úr plastbala,

en síðla um nætur

er senjoran grætur,

þeir kaupa sér glænýja kastala.


Sjáðu

23.04.2007 23:55 - 1322 lestrar - Orš ķ belg (0)

Sjáðu
vinur minn

--- 

Nei annars 

Vertu ekkert
að hafa fyrir

því 


08.04.2007 22:17 - 1562 lestrar - Orš ķ belg (0)

Sá korni þínu
sáðmaður
ef hafa vilt arð
af akri

Sá korni friðar
svo frið megi
upp skera

Sá korni fljótt
svo ég megi
upp skera

Veisla

08.04.2007 22:16 - 1582 lestrar - Orš ķ belg (0)

Gakktu inn
í grashólinn þinn

ungi maður
á sauðskinnsskónum,
stingdu tölvunni þinni
í samband við moldarvegginn
skammt frá langeldinum
og talaðu við heiminn

Taktu síðan móköggul
eða svarðarflögu
í latexklædda lófa þína,
gakktu inn í
steinsteypta hitaveituveröld
þína,
leggðu byrðina frá þér
á marmaraklætt
eldhúsgólfið.

Hengdu læri lambs
í halogenljósið í loftinu,
tendraðu glóð
í mó eða sverði
og bíddu
með handfrjálsan síma í eyra,
fartölvu í kjöltu,
og Quarashi í græjunum
uns hangiketið
verður lagt á borð.


Snjókorn

06.04.2007 09:52 - 1553 lestrar - Orš ķ belg (0)
Ef ég væri snjókorn
og kæmi svífandi
flögrandi
fram og aftur
neðar og neðar
og lenti loksins á blaðinu
sem þú værir að
skrifa

mundirðu brosa
strjúka mig í burtu
og hugsa með þér
að svona skemmtilegur
vær nú veturinn.

En ef ég væri fyrst
bara pínu pínulítið snjókorn
sem myndi
svífa hægt og hægt
flögra um
límast við vini mína
hin  snjókornin
uns ég - við - alla vega ég
væri orðinn heljarstór snjóbolti
og skylli niður á nýskrifað handritið
að bestu bókinni
þinni
splundraðist  og rennbleytti blekið
svo ekkert væri hægt að lesa
dagsverkið farið
til fjandans
hugmyndin týnd

mundirðu þá kannski
hlakka til
vetrarins?

« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur