Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Dansk leverpostej Bryndísar Þorvaldsdóttur

24.11.2010 21:18 - 4833 lestrar - Orš ķ belg (0)

400 g svínalifur

200-250 g svínaspekk

250 g soðnar kartöflur

1 stór laukur 

50 g smjör (líki)

50 g hveiti

4 dl mjólk

1 egg

2 tsk. salt

1 tsk. pipar

1/2 tsk. allrahanda

  • Hreinsuð lifrin, spikið, kartöflur og laukur hakkað
  • Jafningur gerður úr smjör(lík)i, hveiti, mjólk og kryddi
  • Kælt aðeins áður en eggi er hrært saman við
  • Allt hrært saman, sett í form - ekki albeg full
  • Bakað í vatnsbaði neðst í ofni
         nýtt 1 klst
         frosið 1 1/2 klst

 


Dansk leverpostej Anne Lise

24.11.2010 21:12 - 4201 lestrar - Orš ķ belg (0)

1/2 kg svínalifur

1/4 kg spik

1 stór laukur

100 g smjör (líki)

hveiti

mjólk

1 egg

salt

pipar

  • Hakkið spikið einu sinni 
  • Bakið upp þykkan graut úr smjöri (líki) hveiti og mjólk
  • Hellið hökkuðu spikinu út í og látið bráðna í pottinum við lágan hita
  • Hakkið lifrina og laukinn tvisvar
  • Þegar spikið er um það bil bráðnað er lifrinni hellt í + þeyttu eggi, salti og pipar eftir smekk
  • Hrært vel og sett í smurð mót
  • Bakað í vatnsbaði í ca 1 klst.

Rækjusalatið 2005

18.01.2009 22:48 - 2216 lestrar - Orš ķ belg (0)

Salatið
½ kg rækjur
10 sólþurrkaðir tómatar úr glasi, skornir í fína strimla
1-1½ glas af ólífum til dæmis með ansjósufyllingu, í þunnum sneiðum
1 pk. kirsuberjatómatar, þunnt sneiddir
1 fínt skorin paprika
1 höfuð Icebergsalat fínt skorið

Blandað saman í skál og dreypt yfir með örlitlu af balsamediki. Best er að brytja salatið og bæta því út í skömmu áður en borið er á borð, þannig er þetta ferskast.

Sósan
1 dós af sýrðum rjóma
½ msk. hunang
1-2 hvítlauksrif
u.þ.b. ½ matskeið af balsamediki
u.þ.b. teskeið af Ketjap manis (sæt indónesesísk soja)
svolítið karrý
svolítið af nýmuldum svörtum pipar
svolítið af vel muldu safrani (gefur góðan lit og smábragð)

Allt saman hrært saman og smakkað til. Best að sósan standi nokkurn tíma, til dæmis yfir nótt í ísskáp.

Þetta er borið fram með ristuðu brauði.

12. jan 2005 - svp

Chilisulta

18.01.2009 22:23 - 3415 lestrar - Orš ķ belg (0)


chilialdin, magn og styrkleiki eftir smekk
1 stór paprika í sama lit og chili-aldinin
150 ml eplaedik (cider vinegar)
300 g sykur
3 msk. gult Melatin (eða annar sultuhleypir)

Chilialdin og paprika fræhreinsuð og sett í matvinnsluvél ásamt ediki og sykri. Vélin látin ganga þar til allt er orðið að mauki. Sett í pott, hitað að suðu og látið malla í 2-3 mínútur. Potturinn tekinn af hitanum, sultuhleypi hrært saman við, sett aftur á helluna, látið sjóða í 2 mínútur og hrært oft á meðan. Tekið af hitanum, látið standa smástund og síðan hellt í hreina krukku og kælt.


Sultuna má t.d. bera fram t.d. með osti og kexi, eða með köldu kjöti. Hana má líka nota sem gljáa á svína- og fuglakjöt.


Ofnkartöflur með hvítlauk

29.04.2007 09:21 - 3427 lestrar - Orš ķ belg (0)

Kartöflur skornar í helminga eða báta.
Heil hvítlauksrif, ekki afhýdd. Mega vera mörg.
olía, chiliduft, salt.

Kartöflurnar settar í ofnskúffu eða eldfast mót.
kvílauksrifin líka.
olíu hellt yfir og kartöflurnar og rifin vel böðuð í henni
svolítlu af chilidufti dreift yfir og örlitlu salti

Bakað í ofni við 200° í 20-30 mín. 


« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur