Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Þá eða nú eða næst

15.02.2009 07:44 - 1896 lestrar

Fjölbreytni í orðalagi og orðavali er æskileg. Við sem kennum íslensku höfum á undanförnum árum orðið sífellt meira varir við orðfæð nemenda, en hún stafar hugsanlega af því að stórlega hefur dregið úr bóklestri ungmenna. Ég hef verið með á mínum snærum tvítuga nemendur sem hafa að eigin sögn aldrei lesið bók af eigin hvötum, aldrei farið á bókasafn til að fá sér lesefni til afþreyingar - einungis lesið það sem þeim hefur verið gert að lesa í skólum.

Einhæfni í orðalagi er einnig áberandi í fjölmiðlum og iðulega er eins og komi þar upp tískufyrirbæri sem verða ótrúlega lífsseig. Eitt af því er að þegar fréttamenn og fréttaþulir skipta um umræðuefni segja þeir nær undantekningarlaust: Og þá að öðru, þá að fjármálum, og þá skulum við gá til veðurs, og þá til útlanda, og þá yfir í íþróttir, og þá skulum við sjá hvað er í Íslandi í dag.

Enda þótt þá vísi frekar til þátíðar en nútíðar getur svo sem alveg gengið að segja svona - a.m.k. til tilbreytingar - en þegar menn nota eingöngu þetta verður það leiðinlegt og mér finnst það bara asnalegt. Það mætti til dæmis segja; Og næst skilum við líta á íþróttir, og skulum við athuga hvað er í íþróttum, og er komið að því að líta til útlanda. Sjónvarp og útvarp eru þegar allt kemur til alls samtímamiðlar.


1

RE: Þá eða nú eða næst

Ólafur Sigurgeirsson - 20.02.2009 09:53 - olisig[hjį]holar.is

Sæll og þá líklega blessaður.

Mæl þú manna heilastur maðurinn frómi. Þetta er eilíf barátta en íslenskukunnátta virðist ekki vera skilyrði fyrir ráðningu á íslenskum fjölmiðlum. Að auki flæðir hálf-engilsaxneskt orðagjálfur dagana langa út úr útvarpinu /sjónvarpinu. Síðan er eignarfallsfælni að bætast ofan á þágufallssýkina og sjúkleikinn breiðist út

Það er auðvitað með hálfum hug sem ég treð mér inn á þinn vetvang hér, og nú ríður á að vanda sig við ísleskuskrifin. Vona að þú takir þessum athugasemdum ekki illa enda gerðar í fullri vinsemd.  Ég hnaut þó um hvernig þú tekur til orða og velti fyrir mér hvort mín máltilfinning sé að verða úrelt (dofna) og hana þurfi að skerpa.  Þú skrifar: "Við sem kennum íslensku höfum á undanförnum árum orðið sífellt meira varir við orðfæð nemenda....". Siðan hefði ég viljað hafa .. á mínum snærum" á eftir nemendur.... en hvað veit ég? Nú ætla ég ekki að hætta mér lengra í textanum en spyr:

Eru einungis karlmenn í íslenskukennslu? Eru nemendur orðnir hljóðari?

Segi síðan eins og maðurinn á skjánum: Guð blessi Íslandi!

m.b.k. Ólafur Sigurgeirsson


Leggja orš ķ belg

08.02.2012 06:54
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.229, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur