Þegar ég leit á baksíðu Sunnudagsmoggans, sem ég hafði reyndar ekki skoðað fyrr en nú í kvöld, blasti við mér fyrirsögn sem er fullkomlega út í hött að mínum dómi: Nafnið grafið á skjöld. Hvað í ósköpunum er merkilegt við að nafn sé grafið á skjöld? Þetta er til dæmis gert ef maður fær skrifstofu eða skrifborð í vinnunni sinni, pósthólf heima eða í vinnunni, merki til að hengja í barminn ef maður er að vinna þjónustustörf og svo framvegis. Þetta er hversdagslegt og nauðaómerkilegt. Steindauð fyrirsögn og handónýt.
Efni fréttarinnar er hins vegar merkilegt og reyndar kemur það fram strax í undirfyrirsögninni. Verið er að segja frá ungum manni sem var valinn besti nemandi í sínum greinum við merkan háskóla í útlöndum og honum til heiðurs verður nafn hans skráð á skjöld með nöfnum afreksstúdenta skólans.
Nú hefði mátt gera ýmislegt til að lokka lesandann. Bestur í Berkely, Besti stúdentinn í Berkley, Besti námsmaðurinn, Verðlaunastúdent eða eitthvað slíkt, einfalt og jafnvel dálítið ýkjukennt, en nánari skýring væri svo í undirfyrirsögninni eða inngangstexta. Slíkt vekti athygli, en ekki að eitthvert nafn sé grafið á einhvern skjöld!!!

RE: Meira um fyrirsagnir
Margrét - 30.06.2009 22:44 - margret[hjį]bhs.is - frettamidlar.blogspot.comÍslenskur afreksstúdent í Berkeley.
Þjóðernið þarf að koma fram strax, annars er þetta handónýtt að mínum dómi.
RE: Meira um fyrirsagnir
Gisli - 01.07.2009 02:40 - gis[hjį]giscountry.com - giscountry.comgott daemi um hverning menn missa sjonar a beiglunni vid ad einblina a holuna.
Thu varst bestur a mogganum um arid en thu hefdir aldrei nennt ad eiga vid svona fyrirsagnir mjog lengi...