Það er sérkennileg reynsla að horfa á svipinn á Mývetningum þegar fólk segir á Mývatni þegar það á við í Mývatnssveit eða við Mývatn. Ég skil reyndar ekki hvernig vísindamönnum sem fást við veður og lýsa því í fjölmiðlum dettur í hug að tala um veðrið á Mývatni. Ég hef ekki heyrt talað um veðrið á Þingvallavatni eða nokkru öðru vatni reyndar. Það væri að vísu skiljanlegt ef veðurathugunarstöð væri úti á vatninu, en mér skilst að svo sé ekki í Mývatnssveit. Ég hef oft séð endur á Mývatni og jafnvel báta, og þegar vatnið er ísi lagt og hægt að fara þannig út á það og jafnvel á dorg, þá er að mínu viti í lagi að segja á Mývatni. Annars tæplega.

RE: Á Mývatni
gen - 11.02.2009 11:02RE: Á Mývatni
steini - 11.02.2009 18:26 - steini[hjį]kom.is