1 1/4 dl sterkt kaffi
200 g sykur
200 g gott dökkt súkkulaði, grófsaxað
225 g smjör
4 egg
24 cm form smurt og stráð hveiti eða polentu.
Kaffi og sykur soðið saman í dálitla leðju. Súkkulaði og smjöri bætt í og brætt. Kælið þessa blöngu niður í ca 50° (fingurheitt). Hrærið eggin saman við, eitt í einu.
Hellið deiginu í formið og bakið við 170° í 60-70 mínútur. Kakan á að falla og best er hún ef hún fær að standa og jafna sig fram á næsta dag.
