Efni
Brúnkur Nigellu
18.01.2009 22:28 - 1927 lestrar400 g ósaltað smjör
350 g gott hálfbiturt suðusúkkulaði
6 egg
1 1/4 bolli af sykri
1 matskeið af vanillu
1 1/4 bolli af hveiti
1 teskeið salt
1/2 bolli af hvítu súkkulaði, saxað
eða dropar
1/2 bolli af hálfsætu súkkulaði, saxað
eða dropar
2 teskeiðar af flórsykri til skrauts
Aflangt skúffumót 28 x 22 cm með bökunarpappír á botni og hliðum. Forhitið ofninn í 175 gráður.
Bræðið smjörið og hálfbitra súkkulaðið í stórum skaftpotti við lágan hita. Þeytið saman eggin, sykurinn og vanilluna.
Látið súkkulaðiblönduna kólna örlítið. Hellið svo í hana eggja- og sykurblöndunni og blandið vel. Bætið við hveitinu
og saltinu. Bætið síðan við hvíta og hálfsæta súkkulaðinu Hrærið öllu saman og hellið blöndunni í mótið.
Bakið í 25 mínútur. Kakan er tilbúin þegar yfirborðið þornar og er ljósara en kakan að innan. En hún á að vera dökk og mjúk. Fylgjast verður vel með kökunni. Hún má ekki verða of þurr að innan. Munið að kakan heldur áfram að bakast meðan hún er að þorna.
Skerið kökuna í ferkantaða bita meðan hún er enn volg og raðið bitunum á stóran disk og sigtið flórsykurinn yfir.
til baka
Leggja orš ķ belg
18.05.2012 20:50
