Pipar-hlynsíróps smjör
625 gr. ósaltað smjör
1½ bolli hlynsíróp
? bolli sítrónusafi
5 tsk. sítrónubörkur
2½ msk. grófmalaður pipar
5 tsk. salt
1¼ tsk. fínmalaður pipar
Blandið saman í matvinnsluvél smjöri, 1 bolla af hlynsírópi, ½ bolla af sítrónusafa auk sítrónuberki. Saltið og piprið. Í aðra skál setjið ½ bolla af hlynsírópi og restina af sítrónusafanum, piprið örlítið.
Marenering
2½ bolli sítrónusafi
2 bolli hlynsíróp
1¼ bolli kornolía
15 shallotlaukar
15 hvítlauksgeirar
10 stangir tyme
8st. lárviðarlauf
5 tsk. sítrónubörkur
2½ tsk. pipar
12 kg. af kalkún
Blandið öllu saman. Setjið kalkúninn í plastpoka og látið marenerast í 24 tíma, veltið af og til. N.b. hafið bringuna niður.
Hitið ofninn í 220ºC. Hreinsið shallot, hvítlauk og tyme stangir og þurkið. Haldið upp á mareneringuna, takið olíuna ofan af og veiðið laukinn upp úr mareneringunni.
Losið skinnið varlega af fuglinum og setjið smjörið undir skinnið að undanskildum 10 msk. Að því loknu, nuddið restina af smjörinu utaná kalkúninn og grillið í 30 mínútur. Áferðin getur orðið dökk út af sírópinu, en passið að þetta brenni ekki. Lækkið hitann í 175ºC. Þegar c.a. 30 mínútur eru eftir af steikingu takið þá hlynsírópið og sítrónusafann sem búið var að blanda saman og og penslið yfir fuglinn. Hellið mareneringunni í fatið og látið sjóða með í 30 mínútur.
Efni
Pipar- og hlynsírópsleginn kalkúnn
18.01.2009 14:03 - 1987 lestrartil baka
Leggja orš ķ belg
18.05.2012 20:47
