Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Klassísk dönsk önd með óvenjulegu meðlæti

18.01.2009 15:20 - 2640 lestrar

1 önd ca. 3-3½ kg
salt, pipar
2-3 sæt epli skorin í báta
100 g sveskjur
25 g bráðið smjör
4 dl sjóðheitt anda eða kjúklingasoð
12 dl portvín eða madeira
Hveiti til að jafna sósu
sósulitur, ef ástæða er til

Ferskt salat með trönuberjum og sítrusávöxtum
¼- ½ höfuð af rauðkáli, fínskorið
250 g fersk trönuber
75 g reyrsykur
2 appelsínur og 1 greipaldin í bátum
2 höfuð af jöklasalati

Nuddið salti og pipar á öndina utan og innan. Fylli hana af eplabátum og sveskjum og lokið henni með nál eða öðru heppilegu. Penslið öndina með bráðnu smjörinu og leggið hana á rist yfir bökunarpönnu.

Steikið öndina í 1 klst. á 175¨C Hellið feitinni af og setjið öndina í pönnuna (ekki á rist) og steikið áfram í 1½ klst. (gott að miða við 50 mínútur á hvert kíló).

Hellið soðinu af, sigtið það og fleytið fitu af. Takið öndina í sundur, leggið bitana í pönnuna og brúnið hana undir grillinu rétt áður en hún er borin á borð. Fylgist mel með svo hún brenni ekki.

Setjið soðið í pott ásamt portvíninu. Ef til vill þarf að bæta vatni við, en þetta ætti að vera u.þ.b. ½ lítri. Hristið hveiti og vatn og jafnið sósuna, Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk.

Setjið sykurinn og trönuberin í pott og sjóðið við vægan hita í 3-4 mínútur og kælið svo. Setjið rauðkálið út í og síðan appelsínu- og grapebátana og jöklasalatið.

Berið þetta fram með öndinni ásamt soðnum eða brúnuðum kartöflum.

Leggja orš ķ belg

18.05.2012 20:44
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.229, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur