6 kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
1 tsk salt
1 msk. sterkt karrí
1 msk. tælenskt rautt karrí
1 laukur
1-3 hvítlauksrif
2 dl vatn
1 dl sýrður rjómi
1 saxaður jalapenopipar
2 msk. mangómauk
1 dl grænar ólífur
steinselja
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita og steiktar í olíunni í 10-15 mínútur. Kryddinu blandað saman og dreift yfir bitana meðan þeir steikjast.
Laukur og hvítlaukur skorinn í ræmur og bætt út í.
Vatn og sýrður rjómi hrærist saman við. Þetta er svo látið krauma í dálítinn tíma, uns kjúklingurinn er vel soðinn.
Rétt við lok suðutíma er jalapenopipar og mangómauki bætt út í og hrært vel. Loks er ólífunum bætt út í og þetta síðan borið fram með snöggsoðnum tælenskum hrísgrjónum eða bashmati.
Það gefst vel að nota niðursoðinn jalapenopipar, fæst í glösum.
