Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Kjúklingur í tómat-rjómasósu að hætti Surekhu Datye

18.01.2009 14:01 - 280 lestrar - Orš ķ belg (0)
2 grillkjúklingar, smábitar, skinnlausir
2 laukar meðalstórir
4 hvítlauksrif
1 lítil kanilstöng
7 negulnaglar
2 lárviðarlauf
5 msk. smjör
8 meðalstórir tómatar, afhýddir
1/2-1 dl rjómi
4 msk engifer
6 kardimommur
1 tsk. piparkorn
1 tsk. chiliduft

Búið til kryddmauk með því að setja laukinn, hvítlauk, engifer, kanil, kardimommur, negulnagla, piparkorn, lárviðarlauf, chiliduft og 3 msk vatn í matvinnsluvél og maukið vandlega.

Hitið smjör á pönnu og steikið kjúklingabitana þar til þeir verða gullbrúnir Geymið á diski.

Látið smjörið á pönnunni kólna svolítið, hellið svo kryddmaukinu út á pönnuna og steikið í 4-5 mínútur. Bætið í þetta tómötunum, 1/2 bolla af vatni og örlitlu salti. lÁtið krauma undir lokið í 5-10 mínútur.

Setjið kjúklingabitana út í og látið malla þar til þeir eru soðnir og sósan farin að þykkna. Borið fram heitt í skál og skreytt með korianderlaufum ef þau eru til.

     
Þetta kenndi Surekha Datye mér fyrir mörgum árum.

Kókoshrísgrjón með kjúklingi

18.01.2009 14:00 - 454 lestrar - Orš ķ belg (0)
Hrísgrjón
4 kjúklingabringur
1 ds kókosmjólk
1 græn paprika
1 ds tómatabitar
4 hvítlauksrif
2 cm engifer
2 b hrísgrjón
4 b vatn
skvetta af olíu
anis
½ ferskur chilli, saxaður

Sjóða hrísgrjón í vatni og ¾ af kókosmjólkinni og anís + smáslettu af olíu.

Blanda saman ¼ af kókosmjólk, pressuðum hvítlauk, chilli og rifnum engifer. Skera kjúklingabringurnar í bita og velta upp úr blöndunni, láta standa í hálftíma.


Steikja þetta og sjóða á pönnu í 20. mínútur - setja papriku og tómat út í síðustu 10 mínúturnar.

Grísalundir með grænmeti og kússkússi

18.01.2009 13:59 - 409 lestrar - Orš ķ belg (0)

2 grísalundir
pipar
Dijon-sinnep

1 kúrbítur
1 laukur
3-4 sveppir
3-4 gulrætur
2 hnefar af frosnum grænum baunum
2 cm af rifinni engiferrót
3-4 sneiðar af beikoni
smávegis olía
fleira grænmeti eftir smekk, frosið eða ferskt

Sósa úr kjúklingasoði, nautasoði, sósulit, hveiti og rjóma, bragðbætt með pipar

1/4 lítri af vatni
1 msk. olía
1/2-1 tsk salt
kjötkraftur eða jurtakrydd eftir smekk
250 g kússkúss
1 msk. smjör

 

Skerið kúrbítinn eftir smekk, skemmtilegt er að kljúfa hann nokkrum sinnum eftir endilöngu og skera strimlana í hæfilega langa bita. Saxið laukinn. Saxið beikonið. Hitið pönnu með beikoninu, þegar það byrjar að steikjast, bætið þá olíu á pönnuna og leyfið lauknum að krauma þar um stund, bætið svo kúrbítnum út í og öðru grænmeti, sveppunum síðast og engifernum. Ég ríf hann alltaf frosinn á rifjárni. Pipar eftir smekk en varla þörf á salti.

Gerið sósu úr vatni og kjötkrafti, sósulit, hveitihristingi eða sósujafnara og bragðbætið með pipar og rjóma.

Sjóðið vatn með olíuskvettu og salti og öðru kryddi eftir smekk, best að krydda ekki mikið, aðeins að keimur sé af soðinu. Takið af hellunni og hellið kússkússinu út í, hrærið vel í og látið standa í 2-3 mínútur. Skellið svo 1 msk af smjöri út í, hrærið vel í með gaffli /trégaffli og leyfið aðeins að yljast á hellu en sjóðið ekki meir.

Skerið lundirnar í 3-4 cm langa bita, leggið á sárið og bankið með lófanum eða jarkanum báðum megin. Berið svolítið Dijon-sinnep á aðra hliðina en nýmulinn pipar á hina. Steikið á vel heitri pönnu - ekki of lengi, bara smástund því þetta er meyrt kjöt og bitarnir þunnir.


Kótilettur með hvítlauksraspi og tómatsósu

18.01.2009 13:58 - 258 lestrar - Orš ķ belg (0)

8 lambakótilettur
2 sneiðar af heilhveitibrauði
150 g af linu smjöri
3 msk. af olívuolíu
2 msk. af asxaðri steinselju
5 hvítlauksrif
salt og pipar

Tómatsósa:
1 kg af vel þroskuðum tómötum
fersk steinselja
ferskt timian
ferskt rósmarín
1 laukur
1 tsk. af sykri
2 msk. af olífuolíu
salt og nýmulinn pipar

Katöflurnar:
4 mjög stórar kartöflur
1 msk. af sýrðum rjóma
100 g af smjöri
200 g af grófu salti
salt og nýmulinn pipar

 

Hitið ofninn í 150°. Þvoið og þurrkið kartöflurnar, raðið þeim í skál eða fat sem hefur verið botnþakið með grófu salti. Látið bakast í u.þ.b. 30 mínútur.

Ristið brauðsneiðarnar vel og tætið þær í matvinnsluvél. Saxið hvítlaukinn smátt og hrærið saman við brauðmylsnuna ásamt saxaðri steinselju og smjöri. Saltið og piprið og setjið í kæliskáp.

Setjið tómatana í skál með sjóðandi vatni og flysjið þá og hreinsið og skerið síðan í smábita. Saxið laukinn og látið hann meyrna í olíu á pönnu. Blandið tómatmaukinu saman við, sykri og kryddjurtum smátt söxuðum, og látið þetta malla við vægan hita í 20 mínútur eða svo.

Skerið stykki ofan af soðnum kartöflunum og skafið innan úr hýðinu meirihlutann án þess að skemma það, skera eða rífa. Stappið kartöflumaukið saman við sýrða rjómann og smjörið og bragðbætið með salti og pipar. Setjið maukið aftur í kartöfluhýðið. Bakið í ofni á 180° hita í korter.

Saltið og piprið kótiletturnar og steikið þær 3 mínútur á hvorri hlið. Raðið þeim í fat eða ofnskúffu. Smyrjið brauð-hvítlauksmaukinu ofan á kótiletturnar, skellið þeim í ofn undir grill og látið bakast þar til maukið byrjar að gulna.

Berið fram á diski þar sem tómatmaukið er í botninum, kótiletturnar ofan á og kartöflurnar á hliðardiski (ofan á grófa saltinu). Skreytið með kryddjurtum.

Uppskrift úr vorblaði Cuisine Actuelle, 2000


Spakk og haggettí

18.01.2009 13:57 - 248 lestrar - Orš ķ belg (0)

1 pk, ca. 500 g nautahakk

1 laukur
6-8 sneiðar beikon
1 paprika
3-4 tómatar
1-3 hvítlauksrif
1 hálfdós af tómatsósu (endilega úr dós, alls ekki svona pylsutómatglundur)
kjötkraftur
pipar
fleira til bragðbætis eftir vild, t.d. timian eða rósmarín

Spaghetti eða annað pasta, t.d. skrúfur

 

Beikonið smábrytjað og steikt. Laukurinn settur út í ásamt papriku og látið meyrna. Tómatar og hvítlaukur saman við og þessu skömmu síðar hellt í skál.

Hakkið snöggsteikt í svolítilli olíu. Kryddað með pipar og jurtakryddi og svolítill kjötkraftur settur út í til að ýkja bragðið.

Grænmetisblandan sett út í þetta og tómatsósan með og ögn af vatni. Látið krauma við lágan hita í svona korter eða svo.

Borðað með rétt soðnu pasta. Voðalega gott að hafa rifinn Akureyrarost eða parmesan með.


Svínið þitt!

18.01.2009 13:08 - 357 lestrar - Orš ķ belg (0)

500 g svínagúllas
2 msk. olía
3 cm af engiferrót - rifið
½ tsk negull
agnarögn af múskati
3 cm af kókoshnetusmjöri
1 krukka af kryddaðri Kínasósu, t.d. Uncle Ben's Spicy Sezhuan
(1 ds. sýrður rjómi)

Engiferrótin rifin og kjötinu velt upp úr henni.   Steikt í olíunni um stund.  Negul og múskati bætt í ásamt kókoshnetusmjörinu.
Sósan sett út á og þetta allt látið krauma á pönnunni í 20-30 mínútur.

Sýrðum rjóma bætt út í í lokin.  Hann mildar réttinn svo þeir sem vilja hafa hann vel sterkan geta sleppt rjómanum.

Borðað með góðum og snöggsoðnum Thai-hrisgrjónum eða Basmati.

© Þessi  réttur er sérstaklega tileinkaður Einari Karli Hjartarsyni hástökkvara og Íslandsmeti hans, 2.20, sem hann setti í Íþróttahöllinni á Akureyri 14. mars 1999 eftir að hafa gætt sér á þessu á Ásvegi 29 skömmu áður.  svp


Rauðvínskjúklingur - Coq au vin de Bourgogne

18.01.2009 13:07 - 293 lestrar - Orš ķ belg (0)

1 stór kjúklingur (1½-2 kg)
125 g beikon, saxað
50 g smjör
12 skallottulaukar í bitum
6-8 msk. koníak
1 flaska Búrgundavín, rautt
3 hvítlauksrif, marin eða söxuð
ferskt timian
lárviðarlauf
salt og pipar
125 g sveppir
2 msk hveiti

Beikonið steikt og sett á disk.
Smjöri bætt í fituna á pönnunni.   Sveppirnir skornir og steiktir og settir á disk.

Kjúklingurinn steiktur á pönnunni.  Koníakinu hellt yfir og kveikt í og látið loga uns eldurinn slokknar.

Kjúklingurinn settur í pott ásamt beikoninu, sveppunum og öllu kryddinu.   Rauðvíninu hellt yfir og soðið í a.m.k. hálftíma.  Loks er sósan jöfnuð með hveitinu.

Borðað með kartöflum og grænmeti, soðnu eða hráu og auðvitað brauði, til dæmis hvítlauskbrauði.


Kjúklingur með rauðu karrýi og mangómauki

18.01.2009 13:05 - 423 lestrar - Orš ķ belg (0)

6 kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
1 tsk salt
1 msk. sterkt karrí
1 msk. tælenskt rautt karrí
1 laukur
1-3 hvítlauksrif
2 dl vatn
1 dl sýrður rjómi
1 saxaður jalapenopipar
2 msk. mangómauk
1 dl grænar ólífur
steinselja

Kjúklingabringurnar eru skornar í bita og steiktar í olíunni í 10-15 mínútur.  Kryddinu blandað saman og dreift yfir bitana meðan þeir steikjast.
Laukur og hvítlaukur skorinn í ræmur og bætt út í.

Vatn og sýrður rjómi hrærist saman við.  Þetta er svo látið krauma í dálítinn tíma, uns kjúklingurinn er vel soðinn.

Rétt við lok suðutíma er jalapenopipar og mangómauki bætt út í og hrært vel.   Loks er ólífunum bætt út í og þetta síðan borið fram með snöggsoðnum tælenskum hrísgrjónum eða bashmati.

Það gefst vel að nota niðursoðinn jalapenopipar, fæst í glösum.


« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur