1 pk, ca. 500 g nautahakk
1 laukur
6-8 sneiðar beikon
1 paprika
3-4 tómatar
1-3 hvítlauksrif
1 hálfdós af tómatsósu (endilega úr dós, alls ekki svona pylsutómatglundur)
kjötkraftur
pipar
fleira til bragðbætis eftir vild, t.d. timian eða rósmarín
Spaghetti eða annað pasta, t.d. skrúfur
Beikonið smábrytjað og steikt. Laukurinn settur út í ásamt papriku og látið meyrna. Tómatar og hvítlaukur saman við og þessu skömmu síðar hellt í skál.
Hakkið snöggsteikt í svolítilli olíu. Kryddað með pipar og jurtakryddi og svolítill kjötkraftur settur út í til að ýkja bragðið.
Grænmetisblandan sett út í þetta og tómatsósan með og ögn af vatni. Látið krauma við lágan hita í svona korter eða svo.
Borðað með rétt soðnu pasta. Voðalega gott að hafa rifinn Akureyrarost eða parmesan með.
