Sverrir Páll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Páls Erlendssonar, kennara viğ Menntaskólann á Akureyri.

Efni

Skeldır í hrísgrjónabaği

17.10.2006 10:44 - 2371 lestrar

Hrísgrjónin
1-2 msk. olía
1 tsk sterkt karrí
2 bollar jasmín-hrísgrjón
2 tsk. tandori masala
5 bollar vatn

Olían hituð á pönnu. Kryddið sett út í og látið brúnast dálitla stund. Hrísgrjónin sett út í og steikt uns þau byrja að hvítna. Vatnið sett út í og grjónin látin sjóða í 5 mínútur eða svo. Slökkt á hellunni en pannan látin standa á henni með loki í 10-15 mínútur. Grjónin þá hrærð upp og losuð og kæld.

1-2 gulrætur
6-8 radísur
1 rauð paprika

Gulrætur og radísur sneiddar ÖRÞUNNT. Paprikan brytjuð smátt. Sett út í grjónin þegar þau eru orðin sæmilega köld.
 

Skeldýrin
2 dósir kræklingur
1 dós sniglar (fást í Hagkaup og KEA sáluga)
500 g rækjur
4-5 hvítlauksrif pressuð
Smjörklípa

Sniglarnir teknir úr dósinni og baðaðir í hvítlauksmaukinu dálitla stund. Smjörið hitað á pönnu. Sniglarnir steiktir stutta stund. Kræklingnum bætt út í varlega og svo rækjunum. Tekið af pönnu og látið standa dágóða stund og kólna. Hrært út í grjónin þegar allt er orðið kalt

Sósan
1 ds. sýrður rjómi
250 g mæjónes
1 msk sinnep
2 tsk. hunang
1 tsk. sterkt karrí
2 mask portvín

Sýður rjómi og mæjónes hrært saman og sinnepi blandað saman við. Karrí og hunang sett saman við og að lokum portvínið.

Þetta er gott með brauði - ekki síst ristuðu.

 


Leggja orğ í belg

08.02.2012 07:24
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala şín er 38.107.179.230, hún er rekjanleg.

:
Öryggiskóği

Upp aftur