Efni
Rækjusalatið 2005
18.01.2009 22:48 - 2225 lestrarSalatið
½ kg rækjur
10 sólþurrkaðir tómatar úr glasi, skornir í fína strimla
1-1½ glas af ólífum til dæmis með ansjósufyllingu, í þunnum sneiðum
1 pk. kirsuberjatómatar, þunnt sneiddir
1 fínt skorin paprika
1 höfuð Icebergsalat fínt skorið
Blandað saman í skál og dreypt yfir með örlitlu af balsamediki. Best er að brytja salatið og bæta því út í skömmu áður en borið er á borð, þannig er þetta ferskast.
Sósan
1 dós af sýrðum rjóma
½ msk. hunang
1-2 hvítlauksrif
u.þ.b. ½ matskeið af balsamediki
u.þ.b. teskeið af Ketjap manis (sæt indónesesísk soja)
svolítið karrý
svolítið af nýmuldum svörtum pipar
svolítið af vel muldu safrani (gefur góðan lit og smábragð)
Allt saman hrært saman og smakkað til. Best að sósan standi nokkurn tíma, til dæmis yfir nótt í ísskáp.
Þetta er borið fram með ristuðu brauði.
12. jan 2005 - svp
til baka
Leggja orš ķ belg
08.02.2012 07:15
