1 kalkúnn 6-7 kg
(innmat má taka, brúna og sjóða í söltuðu og pipruðu vatni til sósugerðar)
1 1/4 tsk salt
1/2 tsk svartur pipar
2 appelsínur, skornar í báta
3 rauðlaukar skornir í báta
5 lárviðarlauf
6 msk. bráðið ósaltað smjör
Sósan:
Soð af kalkúninum
4 bollar af kalkúnasoði gerðu úr kjötkrafti
1/3 bolli hveiti
Skraut á fat:
rauðlaukar skornir í áttunga og fersk lárviðalauf
Hitið ofninn í 250° Hreinsið fuglinn innan og þurrkið, saltið og piprið vel. Lokið hálsopinu. Fyllið fuglinn af appelsínubitum, og einum af laukunum í bitum ásamt lárviðarlaufi. Bindið leggina saman og hagræðið vængbörðunum.
Skellið foglinum í steikarpott og brúnið hressilega í hálftíma í miðjum ofni.
Á meðan fuglinn brúnast eru tveir laukar steiktir í 2 msk af smjöri.
Lækkið hitann í 180° Penslið fuglinn með afganginum af smjörinu og steikið í hálftíma í viðbót. Penslið og ausið fulginn svo með lauksmjörinu á 30 mínútna fresti (setjið svolítið vatn í pottinn ef laukurinn fer að brúnast um of) þar til kjöthitamælir í lærvöðva sýnir 80° (u.þ.b. 1 1/2 - 2 tíma þannig að heildaríminn er 2 1/-3 tímar) Takið fuglinn upp úr og setjið á bretti og breiðið yfir og látið standa í 25 mínútur.
Sósugerð: Hellið soðinu úr steikarpottinum í skál. Fleytið af þesssu 1/4 bolla af feiti og geymið. Bætið í soði þannig að það verði alls a.m.k. 4 1/2 bolli. Setjið steikarpottinn á 2 hellur, kveikið undir og hellið einum bolla af soði í hann, látið krauma og leysið upp krydd og annað í pottinum, hellið svo öllu soðinu úr skálinni saman við og loks aftur úr steikarpottinum í skálina í gegnum sigti.
Hrærið saman feitina og hveiti í vænum potti og látið krauma nokkrar mínútur. Hellið svo soðinu út í, þeytið vel til að komast hjá kekkjum og látið krauma við vægan hita í 10 mínútur - bætið út í safa sem
Efni
Ofnsteiktur kalkúnn með appelsínum, lárviðarlaufi, rauðlauk og soðsósu f. 8-10
18.01.2009 14:07 - 1844 lestrartil baka
Leggja orš ķ belg
08.02.2012 07:39
