8 lambakótilettur
2 sneiðar af heilhveitibrauði
150 g af linu smjöri
3 msk. af olívuolíu
2 msk. af asxaðri steinselju
5 hvítlauksrif
salt og pipar
Tómatsósa:
1 kg af vel þroskuðum tómötum
fersk steinselja
ferskt timian
ferskt rósmarín
1 laukur
1 tsk. af sykri
2 msk. af olífuolíu
salt og nýmulinn pipar
Katöflurnar:
4 mjög stórar kartöflur
1 msk. af sýrðum rjóma
100 g af smjöri
200 g af grófu salti
salt og nýmulinn pipar
Hitið ofninn í 150°. Þvoið og þurrkið kartöflurnar, raðið þeim í skál eða fat sem hefur verið botnþakið með grófu salti. Látið bakast í u.þ.b. 30 mínútur.
Ristið brauðsneiðarnar vel og tætið þær í matvinnsluvél. Saxið hvítlaukinn smátt og hrærið saman við brauðmylsnuna ásamt saxaðri steinselju og smjöri. Saltið og piprið og setjið í kæliskáp.
Setjið tómatana í skál með sjóðandi vatni og flysjið þá og hreinsið og skerið síðan í smábita. Saxið laukinn og látið hann meyrna í olíu á pönnu. Blandið tómatmaukinu saman við, sykri og kryddjurtum smátt söxuðum, og látið þetta malla við vægan hita í 20 mínútur eða svo.
Skerið stykki ofan af soðnum kartöflunum og skafið innan úr hýðinu meirihlutann án þess að skemma það, skera eða rífa. Stappið kartöflumaukið saman við sýrða rjómann og smjörið og bragðbætið með salti og pipar. Setjið maukið aftur í kartöfluhýðið. Bakið í ofni á 180° hita í korter.
Saltið og piprið kótiletturnar og steikið þær 3 mínútur á hvorri hlið. Raðið þeim í fat eða ofnskúffu. Smyrjið brauð-hvítlauksmaukinu ofan á kótiletturnar, skellið þeim í ofn undir grill og látið bakast þar til maukið byrjar að gulna.
Berið fram á diski þar sem tómatmaukið er í botninum, kótiletturnar ofan á og kartöflurnar á hliðardiski (ofan á grófa saltinu). Skreytið með kryddjurtum.
Uppskrift úr vorblaði Cuisine Actuelle, 2000
