Sverrir Páll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Páls Erlendssonar, kennara viđ Menntaskólann á Akureyri.

Efni

Hvítlaukssúpan kćra

17.10.2006 10:28 - 2779 lestrar

8-10 súputeningar (eða jafngildi þeirra af nautakjötskrafti)
8 bollar af soðnu vatni
15-20 stór hvítlauksrif (2-3 venjulegir hvítlaukar úr netpoka)
2 msk. smjör
2 msk. söxuð steinsela
1 msk, hveiti
¼ tsk. nýmulinn pipar
6 eggjarauður, hrærðar
6 litlar sneiðar af ristuðu brauði
Bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur

Setjið soðið vatnið í skál og leysið upp kjötkraftinn í því.

Takið utan af hvítlauknum og saxið hann smátt. Látið hann síðan ásamt steinseljunni krauma í smjörinu í potti við lágan hita. Gætið þess að þetta brenni ekki við. Bætið hveitinu út í og leyfið þessu að brúnast stundarkorn.

Hellið soðinu með kjötkraftinum út í pottinn, bætið piparnum út í og látið malla að minnsta kosti í hálftíma, jafnvel upp undir klukkutíma.

Rétt áður en súpan er tekin af hellunni, hellið eggjarauðunum smátt og smátt út í og hrærið varlega.

Setjið súpuna í eldfastar skálar, leggið eina brauðsneið með osti ofan á súpuna og bregðið þessu undir grill eða í snarpheitan ofn svo osturinn bráðni.

Uppskriftin er ætluð 6-8 manns.

(Þessi uppskrift er úr hvítlaukshéraðinu Gilroy í Kaliforníu)

 


Leggja orđ í belg

08.02.2012 07:19
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala ţín er 38.107.179.228, hún er rekjanleg.

:
Öryggiskóđi

Upp aftur