Sverrir Páll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Páls Erlendssonar, kennara viđ Menntaskólann á Akureyri.

Efni

Gundel pönnukökur

20.10.2006 20:19 - 2194 lestrar
Kökurnar
2 egg
2 dl mjólk
240 g hveiti (má setja lúku af hrísmjöli í stað jafnmikils hveitis)
100 g smjörlíki eða 1 dl olía
salt eða sykur að smekk
2 dl mjólk eða sódavatn   

Egg og olía eða kælt bráðið smjörlíki hrært vel saman, 2 dl af mjólk út í ásamt sykri/salti.  Hveitið sett í og hrært kekkjalaust.  Bætt svo út í mjólk eða sódavatni þar til soppan er mátulega þykk. Hæfileg þykkt er mitt á milli pönnukökudeigs og vöffludeigs því Gundel-pönnukökur mega vera svolítið þykkar. Bakað á pönnukökupönnu.

1½ dl romm (með rommbragði, Stroh eða Morgan en ekki Bacardi eða slíkt)
    
Fyllingin
40 g rúsínur
20 g sykurgljáður appelsínubörkur
180 g valhnetur, brytjaðar (ekki of smátt)
1 dl rjómi
120 g sykur
kanill, ½ tsk eða svo

Rúsínur og appelsínubörkur lagt í beyti í romm í sólarhring. Valhnetur saxaðar. Rjómi settur í pott og hitaður að suðu, sykri bætt í og kanil og látið malla dálitla stund við vægan hita. Hnetunum bætt í svo og rúsínunum og berkinum – eftir að rommið hefur verið síað frá. Sé þetta mjög þurrt og tolli ekki saman eins og grautur má bæta ögn af mjólk út í. Tekið af hellu og látið kólna að mestu og þá helmingnum af romminu bætt út í, hrært og geymt. Þegar pönnukökurnar hafa verið  bakaðar er dálítið af fyllingu sett í hverja og eina og þær rúllaðar upp. Halda skyldi þeim volgum.
 
Sósan
2½ dl mjólk
2 msk sykur
vanilla
3 eggjarauður

100 g súkkulaði. Brætt í skál í vatnsbaði.

6-7 msk.sykur
½  bolli kakó
2 ms. hveiti
4 msk mjólk


Mjólkin soðin með sykrinum og vanillunni.  Geymd. Eggjarauðurnar þeyttar vel og hrært út í mjólkurblönduna þegar hún hefur kólnað töluvert.

Þetta allt hrært saman.  Sjálfsagt þarf meiri vökva til að þetta hrærist og verði að þykkum súkkulaðimassa.

Brædda súkkulaðinu blandað saman við og loks vanillumjólkinni. Passið samt að þetta verði ekki of þunnt, þetta á að vera eins og þykkur grautur. Afganginum af romminu bætt út í (og ef til vill ögn til viðbótar)

2 dl af rjóma stífþeyttir og blandð saman við súkkulaðið.

Ein pönnukaka sett á hvern disk og væn sletta af súkkulaðirjómasósu með. Þetta er M J Ö G saðsamt. Og ungverskt.

Leggja orđ í belg

08.02.2012 07:12
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala ţín er 38.107.179.226, hún er rekjanleg.

:
Öryggiskóđi

Upp aftur