2 grísalundir
pipar
Dijon-sinnep
1 kúrbítur
1 laukur
3-4 sveppir
3-4 gulrætur
2 hnefar af frosnum grænum baunum
2 cm af rifinni engiferrót
3-4 sneiðar af beikoni
smávegis olía
fleira grænmeti eftir smekk, frosið eða ferskt
Sósa úr kjúklingasoði, nautasoði, sósulit, hveiti og rjóma, bragðbætt með pipar
1/4 lítri af vatni
1 msk. olía
1/2-1 tsk salt
kjötkraftur eða jurtakrydd eftir smekk
250 g kússkúss
1 msk. smjör
Skerið kúrbítinn eftir smekk, skemmtilegt er að kljúfa hann nokkrum sinnum eftir endilöngu og skera strimlana í hæfilega langa bita. Saxið laukinn. Saxið beikonið. Hitið pönnu með beikoninu, þegar það byrjar að steikjast, bætið þá olíu á pönnuna og leyfið lauknum að krauma þar um stund, bætið svo kúrbítnum út í og öðru grænmeti, sveppunum síðast og engifernum. Ég ríf hann alltaf frosinn á rifjárni. Pipar eftir smekk en varla þörf á salti.
Gerið sósu úr vatni og kjötkrafti, sósulit, hveitihristingi eða sósujafnara og bragðbætið með pipar og rjóma.
Sjóðið vatn með olíuskvettu og salti og öðru kryddi eftir smekk, best að krydda ekki mikið, aðeins að keimur sé af soðinu. Takið af hellunni og hellið kússkússinu út í, hrærið vel í og látið standa í 2-3 mínútur. Skellið svo 1 msk af smjöri út í, hrærið vel í með gaffli /trégaffli og leyfið aðeins að yljast á hellu en sjóðið ekki meir.
Skerið lundirnar í 3-4 cm langa bita, leggið á sárið og bankið með lófanum eða jarkanum báðum megin. Berið svolítið Dijon-sinnep á aðra hliðina en nýmulinn pipar á hina. Steikið á vel heitri pönnu - ekki of lengi, bara smástund því þetta er meyrt kjöt og bitarnir þunnir.
