250 g suðusúkkulaði
225 g smjör
110 g sykur
2 msk Grand Marnier eða koníak (eða 2 tsk vanilluessens)
5 egg
1 msk hveiti
Ofninn hitaður í 180°C og meðalstórt springform smurt og pappírsklætt. Súkkulaði, smjör og sykur sett í pott og hitað gætilega þar til súkkulaðið og smjörið er bráðið og samlagað sykrinum. Látið kólna dálítið og síðan er líkjörnum hrært saman við. Eggin léttþeytt í skál og hveitinu þeytt saman við. Súkkulaðiblöndunni hrært saman við. Hellt í form og bakað í um hálftíma (gæti þó þurft lengri tíma en þessi kaka á að vera aðeins mýkri í miðju en kakan á undan). Látin kólna alveg í forminu.
(líka Nanna, held ég)
