8 sneiðar af beikoni, skornar í bita
2 vænir laukar, þunnar sneiðar
20 hvítlauksrif, grófsöxuð
6 bollar af kjúklingasoði
½ bolli af þurru hvítvíni
1 lárviðarlauf
¼ tsk. af salti
4 ristaðar franskbrauðssneiðar
4 msk. af rifnum Parmesanosti
1 msk. af saxaðri steinselju
Steikið beikonið svo það verði stökkt og setjið í pott. Látið laukirnn og hvítlaukinn meyrna við lágan hita í 15 mínútur eða svo. Notið til þess u.þ.b. 1 matskeið af beikonfitunni.
Setjið laukinn og kjúklingasoðið, vínið, lárviðarlaufið og saltið í pottinn með beikoninu. Látið suðuna koma upp og síðan malla við lágan hita í hálftíma.Sskömmu áður en súpan er borin fram þarf að þekja hverja brauðsneið með einni matskeið af Parmesanosti og bregða brauðinu í ofn eða undir grill þar til osturinn bráðnar. Ausið súpunni í skálar eða á diska og setjið eina brauðsneið ofan á. Skreytið með steinselju.
Þessa uppskrift er ættuð frá Gilroy í Kaliforníu
