Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Ein svínalund

18.01.2009 14:02 - 1784 lestrar
Ein svínalund
pipar
Dijon sinnep
rifinn ostur
gott jurtakrydd, til dæmis lyktargóð blanda frá Pottagöldrum
anisfræ

Ferskt grænmeti, t.d.
laukur
paprika
kúrbítur
gulrætur
brokkoli
blómkál
+pipar og kraftur

 

Lundin hreinsuð vel af fitu og sinum

Pipar malaður yfir lundina og klappað yfir, sinnepi smurt yfir.

Steikt smástund í vel heitri oliu.

Lundin sett í eldfast mót, rifinn ostur settur yfir með jrutakryddi og anis.

Sett í ofn á 180-200 og látið bakast meðan grænmetið er lagað

Grænmetið brytjað og steikt á pönnu, smávatnsgusa sett út í ásamt krafti og pipar malaður yfir. Látið krauma uns það tekur að mýkjast. Ekki mauksjóða.  

Voðalega gott að hafa með þessu smjörsteikta sveppi sem hafa fengið að krauma smástund í rjóma - en það er bara til bragðbætis.

Leggja orš ķ belg

08.02.2012 06:53
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.226, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur