Sverrir Páll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Páls Erlendssonar, kennara viđ Menntaskólann á Akureyri.

Efni

Brokkolí

16.11.2006 00:09 - 3088 lestrar
Nú man ég ekki hvað brokkolí heitir á íslensku, en ég tók einhvern tíma upp á því, eftir að brokkolí hafði skemmst í ísskápnum hjá mér, linast og farið svo að gulna og mygla, að taka brokkolígreinina, skera aðeins neðan af stönglinum til að opna sárið og stinga í vatnsglas og setti það bara út í eldhúsglugga, eins og þetta væri afskorið blóm. Viti menn, það fór að draga í sig vatn, varð svona stinnt og fallegt og ógurlega bragðgott. Mér finnst nefnilega sælgæti að brjóta eina og eina smágrein af brokkolíi og bryðja hrátt.

 
Ég gæti trúað að maður gæti geymt fleira grænmeti í vatni, í kæli eða utan hans. Gaman væri að heyra hvað aðrir segja um það.


1

RE: Brokkolí

Bjarnheiður - 14.09.2008 06:33 - bjarnheidur[hjá]gmail.com
Brokkolí heitir spergilkál á íslensku. Steinselja og fleiri afskornar kryddjurtir geymast líka betur sem vöndur í vatnsglasi.

Leggja orđ í belg

08.02.2012 06:43
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala ţín er 38.107.179.229, hún er rekjanleg.

:
Öryggiskóđi

Upp aftur