Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Aš steikja nautaket

17.11.2006 21:05 - 3210 lestrar
Ég hef stundum verið spurður um það hvernig eigi að steikja hitt eða þetta ketið og vefst jafnan tunga um höfuð og háls. Aðrir menn eru mér miklu meiri sérfræðingar í þessu. Sumir gera þetta eftir tilfinningunni einni og prófa hversu vel gangi, það geri ég. Aðrir nota kjöthitamæli, það kann ég ekki nógu vel. En best þykir mér að leita til þess manns sem mest veit um mat hér á norðurslóðum. Hann heitir Hermann Huijbens og er hvort tveggja matreiðslumeistari og kjötvinnslumeistari en er hins vegar á kafi í heilsusamlegu fæði, á og rekur Heilsuhúsið á Glerártorgi á Akureyri.

Ef steikja á nautalund segir Hermann að best sé að krydda vöðvann og snöggsteikja hann á pönnu, brjóta síðan upp á lundina í grennri endann og binda steikina upp þannig að vöðvinn sé jafnsver. Steikja þetta svo í ofni sem hitaður hefur verið í 200°C í 15-18 mínútur til að fá lundina mjúka en rauða í kjarnann.

Roast beef vill Hermann steikja svona: Maður brúnar vöðvann fyrst og kryddar, stingur honum svo í 200°C heitan ofn og steikir hann sem svarar til 35-45 mínútur á hvert kíló (svo þarf að reikna út frá því) eftir því hversu rautt ketið á að vera.

Leggja orš ķ belg

08.02.2012 07:18
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.230, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur