1 dós sniglar (24 stk)
12 sveppir 2-3 cm í þvermál
12 sneiðar af beikoni, ekki of söltu
1 hvítlauksrif
smjörklípa
Þvoið sveppina. Brjótið eða skerið úr þeim stafinn.
Látið sveppina á hattinn í heitt smjör á pönnu og látið krauma þar við hóflegan hita uns vökvi fer að gutla í sárinu eftir stafinn. Setjið þá agnarögn af mörðum hvítlauk í sárið. Látið kólna.
Setjið 2 snigla ofan á sárið á sveppnum og vefjið beikonsneið sem gjörð utan með þessu. Setjið á eldfast fat og bakið við hressilegan hita uns beikonið er orðið sem hörð og stökk gjörð utan um snigilinn á sveppnum.
Berið fram með fínt skornu grænmeti og timiangrein, dreypið agnarögn af balsamediki yfir grænmetið.
Gott með hvítlauksbrauði.
