500 g rækjur, mega vera smáar
1 græn paprika
1 rauð paprika
10 hreðkur - æi nei, radísur
3-4 meðalstórir sveppir
½-1 hvítlaukur hvítlauksrif
1 laukur
1/3 glas jalapeno pipar (nacho sliced)
3 msk. jómfrúarolía
5 msk. balsamedik
Rækjurnar þíddar.
Allt grænmetið skorið afar fínt og blandað saman í skál. Olíu og balsamediki hellt yfir og hrært vel. Rækjurnar settar út í og blandað vel saman.
Geymist í kæli. Borðist með ristuðu brauði eða kexi.
