1 kg rækjur
safi úr 5 lime
2 dl ólífuolía (þessi græna)
4 smátt söxuð hvítlauksrif (má vera meira - smekkur)
1 búnt fersk mynta (sett í glas og klippt smátt þar niðri)
1 búnt ferskt basil (farið eins með það og myntuna)
salt og nýmalaður pipar
Hrærið lime, olíu, salti, pipar og hvítlauk saman (gjarnan að hrista það saman í sósuhristu)
Hellið yfir rækjurnar og látið þær marinerast í kæliskáp í min. 1 klst og allt upp í sólarhring. Ég set þær í box með loki og velti þeim í safanum svona þegar ég á leið í skápinn.
Um leið og rækjurnar eru bornar fram (eftir að safinn hefur að mestu verið sigtaður frá) blandar þú léttilega saman við þær basil og myntu. Gjarnan heil basilblöð til skrauts hist og her
Að sögn Brynhildar sérstaklega gott með "með angandi brauð í ofninum, kertaljós á hillunni og Chet Baker eða Coltrane á fóninum."
