1-2 hvítlaukar
1 dl hveiti
1 dl vatn
1 egg
mjólkurdreitill
olía
Takið hvítlaukinn í sundur og afhýðið rifin. Sjóðið þau við vægan hita í mjólk í 15 mínútur.
Hrærið saman 1 dl af hveiti, 1 dl af vatni og 1 eggjarauðu. Bætið 1 stífþeyttri eggjahvítu í blönduna.
Dýfið hvítlauksgeirunum í deigið og steikið í vel heitri olíu þannig að þeir verði gullnir á lit. Þá má borða sem bragðauka og sælgæti beint af pönnunni eða með kjötréttum.
(Frá Brynhildi Ragnarsdóttur)
