Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Framandi þrenning

29.04.2007 09:15 - 2864 lestrar - Orš ķ belg (0)

Döðlur vafðar með beikoni, helst fitulitlu. ég notaði ítalskt Fiorucci, Speck.
Settar saman tvær og tvær á tannstöngul.
brúnað i smjöri.
kælt.

Risarækjur látnar liggja í baði af olíu og miklum pressuðum hvítlauk
léttsteikt  og kælt

Teskeið full af laxahrognum frá Svalbarðsströnd látin á disk, ein döðlutvenna og 2-3 rækjur með. 

Einfalt en býsna gott. 


Rękjuforrétturinn góši

17.10.2006 20:24 - 3133 lestrar - Orš ķ belg (0)

EFNI
-½ kg rækjur
-¼-½ dós Aspargus, smátt skorinn
-125 g sveppir, smekklega brytjaðir
-3 tómatar, saxaðir smátt
-1 höfuð Icebergsalat, saxað

Þetta er allt sett saman í skál og blandað varlega.

LÖGUR:
-8 msk. góð matarolía
-4 msk. eplaedik
-2-3 hvítlauksrif örsmátt söxuð
-salt og pipar

Hrært vel saman og hellt yfir það sem í skálinni er skömmu fyrir notkun.

SÓSA:
-1 dl majonaise
-1 dl þeyttur rjómi
-1 dl tómatsósa
-1-2 msk sherry
-1½ tsk karry
-1 msk steinselja

Allt hrært saman. Sósan borin fram í sérstakri skál svo allir geti fengið sér eins og þeim hentar út á réttinn.

Borðist með ristuðu brauði, t.d. hálfum sneiðum horn í horn.  


Rękjur ķ heitu baši

17.10.2006 20:21 - 2792 lestrar - Orš ķ belg (0)

500 g rækjur, mega vera smáar
1 græn paprika
1 rauð paprika
10 hreðkur - æi nei, radísur
3-4 meðalstórir sveppir
½-1 hvítlaukur hvítlauksrif
1 laukur
1/3 glas jalapeno pipar (nacho sliced)
3 msk. jómfrúarolía
5 msk. balsamedik

Rækjurnar þíddar.

Allt grænmetið skorið afar fínt og blandað saman í skál.  Olíu og balsamediki hellt yfir og hrært vel.   Rækjurnar settar út í og blandað vel saman.

Geymist í kæli.  Borðist með ristuðu brauði eða kexi.


Forréttur meš rękjum og hörpuskel

17.10.2006 20:20 - 3161 lestrar - Orš ķ belg (0)

500 g rækjur
500 g hörpuskelfiskur
2 tsk karrý
2 hvítlauksrif
cayanepipar
6 msk. tómatsósa
2 msk. soyasósa
smjörlíki
rjómi
sósujafnari

Smjörlíki brætt og hvítlaukurinn látinn meyrna í því.

Fiskmetið sett út í ásamt kryddinu og loks sósunum og rjómanum og látið krauma í andartak.   Sósujafnari settur út í eftir þörfum.

Gott með ristuðu brauði.


Kręklinga-rękjusalat

17.10.2006 20:18 - 3058 lestrar - Orš ķ belg (0)

500 g rækjur
1 dós kræklingar (Musselsalad)
2-3 tómatar
1 græn paprika
1-2 ferskar perur
½ góð melóna
blá vínber

Sósan:
2 hlutar sýrður rjómi
1 hluti mæjónes
örlítil HP Fruity-sósa
tómatsósa eftir smekk
karrí eftir smekk

Rækjurnar og kræklingurinn sett í skál.
Ávextir og grænmeti saxað og blandað saman við.

Sósuefnið hrært vel saman og sósan síðan sett út í blönduna og hrært vel.
Verulega gott með góðu, ristuðu brauði eða heimabökuðu brauði eða bollum.


Skeldżr ķ hrķsgrjónabaši

17.10.2006 10:44 - 2360 lestrar - Orš ķ belg (0)

Hrísgrjónin
1-2 msk. olía
1 tsk sterkt karrí
2 bollar jasmín-hrísgrjón
2 tsk. tandori masala
5 bollar vatn

Olían hituð á pönnu. Kryddið sett út í og látið brúnast dálitla stund. Hrísgrjónin sett út í og steikt uns þau byrja að hvítna. Vatnið sett út í og grjónin látin sjóða í 5 mínútur eða svo. Slökkt á hellunni en pannan látin standa á henni með loki í 10-15 mínútur. Grjónin þá hrærð upp og losuð og kæld.

1-2 gulrætur
6-8 radísur
1 rauð paprika

Gulrætur og radísur sneiddar ÖRÞUNNT. Paprikan brytjuð smátt. Sett út í grjónin þegar þau eru orðin sæmilega köld.
 

Skeldýrin
2 dósir kræklingur
1 dós sniglar (fást í Hagkaup og KEA sáluga)
500 g rækjur
4-5 hvítlauksrif pressuð
Smjörklípa

Sniglarnir teknir úr dósinni og baðaðir í hvítlauksmaukinu dálitla stund. Smjörið hitað á pönnu. Sniglarnir steiktir stutta stund. Kræklingnum bætt út í varlega og svo rækjunum. Tekið af pönnu og látið standa dágóða stund og kólna. Hrært út í grjónin þegar allt er orðið kalt

Sósan
1 ds. sýrður rjómi
250 g mæjónes
1 msk sinnep
2 tsk. hunang
1 tsk. sterkt karrí
2 mask portvín

Sýður rjómi og mæjónes hrært saman og sinnepi blandað saman við. Karrí og hunang sett saman við og að lokum portvínið.

Þetta er gott með brauði - ekki síst ristuðu.

 


Rękjur Brynhildar

17.10.2006 10:41 - 2648 lestrar - Orš ķ belg (0)
1 kg rækjur
safi úr 5 lime
2 dl ólífuolía (þessi græna)
4 smátt söxuð hvítlauksrif (má vera meira - smekkur)
1 búnt fersk mynta (sett í glas og klippt smátt þar niðri)
1 búnt ferskt basil (farið eins með það og myntuna)
salt og nýmalaður pipar

Hrærið lime, olíu, salti, pipar og hvítlauk saman (gjarnan að hrista það saman í sósuhristu)

Hellið yfir rækjurnar og látið þær marinerast í kæliskáp í min. 1 klst og allt upp í sólarhring. Ég set þær í box með loki og velti þeim í safanum svona þegar ég á leið í skápinn.

Um leið og rækjurnar eru bornar fram (eftir að safinn hefur að mestu verið sigtaður frá) blandar þú léttilega saman við þær basil og myntu. Gjarnan heil basilblöð til skrauts hist og her

Að sögn Brynhildar sérstaklega gott með "með angandi brauð í ofninum, kertaljós á hillunni og Chet Baker eða Coltrane á fóninum."

Innbakašur hvķtlaukur

17.10.2006 10:40 - 2699 lestrar - Orš ķ belg (0)
1-2 hvítlaukar
1 dl hveiti
1 dl vatn
1 egg
mjólkurdreitill
olía

Takið hvítlaukinn í sundur og afhýðið rifin. Sjóðið þau við vægan hita í mjólk í 15 mínútur.

Hrærið saman 1 dl af hveiti, 1 dl af vatni og 1 eggjarauðu. Bætið 1 stífþeyttri eggjahvítu í blönduna.

Dýfið hvítlauksgeirunum í deigið og steikið í vel heitri olíu þannig að þeir verði gullnir á lit. Þá má borða sem bragðauka og sælgæti beint af pönnunni eða með kjötréttum.

(Frá Brynhildi Ragnarsdóttur)

 

« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur