1 pk saltfiskur frá Eðalfiski
Sletta af olíu
1 kúrbítur
2 paprikur
1 laukur
3-5 hvítlauksrif
1 ds niðursoðnir tómatar
Svartar og grænar ólífur
2 tsk hunang
svartur pipar
Saltfiskurinn roðflettur og skorinn í teninga
Olía sett á pönnu og hituð. Laukurinn steiktur stutta stund og síðan annað grænmeti, hvítlaukur smátt skorinn settur síðast út í ásamt ólífum. Loks niðursoðnir tómatar. Kryddað og látið malla dágóða stund.
Þegar grænmetið er tilbúið er slökkt undir pönnunni, saltfiskbitarnir settir út í, sökkt í grænmetið og lok sett á pönnuna. Látið standa í svona 5-7 mínútur þar til fiskbitarnir eru um það bil gegnheitir - léttsoðnir.
Með þessu má hafa eftir smekk kartöflur, hrísgrjón eða brauð - eða bara borða þetta eins og það er.
