Ferskt grænmeti, t.d.
laukur
paprika
kúrbítur
gulrætur
brokkoli
blómkál
tómatur
- eða bara það sem mannni þykir gott
+pipar og kraftur
Þorskflak eða ýsuflak
svolítill rifinn ostur
Grænmetið brytjað og sett í eldfast form / fat
Malið agnarögn af pipar yfir og fáein korna af salti eða hvítlaukssalti. Alls ekki mikið salt, helst ekkert.
Kreistið ögn af sítrónusafa yfir flakið, malið ögn af pipar á það og leggið ofan á grænmetið. Rífið ost og dreifið yfir flakið.
Bakiið í ofni við ca 200° þar til grænmetið er tilbúið - eigum við að segja 20 mínútur eða svo
Má hafa brauð eða hrísgrjón eða kartöflur með en ef maður hefur mikið grænmeti er það nóg.
