Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Tiramisu - eins og hśn į aš vera

20.10.2006 20:23 - 2980 lestrar

24 fingurkex (Lady Fingers)
8 eggjarauður
150 g sykur
500 g Mascarpone
10 cl Amarettolíkjör
3 msk. dökkt kakóduft
25 cl expressokaffi
1 msk. skyndikaffiduft

Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til það verður létt og ljósgult. Hrærið saman Mascarpone og Amaretto þar til það verður jafnt og mjúkt og blandið þessu loks öllu saman.

Setjið þriðjunginn af þessari blöndu í skál/form, breiðið úr því og sáldrið yfir það einni matskeið af kakóinu (gott að gera það með tesíu)

Hellið kaffinu í skál, setjið skyndikaffið út í til að styrkja það. Vætið 12 kexkökur í kaffinu, eina í senn, og leggið þær ofan á bönduna í forminu/skálinni.

Setjið nú aftur þriðjung af blöndunni yfir kexið og á ný 12 kaffibleyttar kexkökur, þá eina matskrið af kakói og loks afganginn af blöndunni og afganginn af kakóinu.

Setjið plastfilmu yfir skálina/formið og látið standa í ísskáp 12 tíma. Berið Tiramisu alltaf fram ískalda.

(Í tilbreytingu má setja annan líkjör í stað Amaretto, til dæmis Grand Marnier, kaffilíkjör o.s.frv.)

Uppskrift úr Ítalíublaði Cuisine Actuelle, 2000


Leggja orš ķ belg

18.05.2012 20:26
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.227, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur