Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Sśkkulašimśs meš englasósu

20.10.2006 20:25 - 2902 lestrar

Súkkulaðimús með englasósu

Músin:
250 g dökkt suðusúkkulaði, t.d. Lindt
6 ný egg stofuheit
200 g smjör
1 kiwi
1 mandarína
nokkur rifsber

Englasósan:
4 eggjarauður
125 g sykur
50 cl mjólk
1 msk. kakóduft

Látið smjörið bráðna við mjög vægan hita í potti. Veiðið skán ofan af því og látið kólna svolítið.

Brjótið súkkulaðið í smábita og bræðið það varlega í skál í vatnsbaði. Látið það líka kólna dálítið.

Aðskiljið eggjahvítur og rauður. Setjið eggjarauðurnar út í súkkulaðið eina og eina í senn og hrærið hægt og varlega í með sleif.

Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við súkkulaðihræruna - ekki hræra of mikið, rétt láta þetta ná að blandast.

Þekið kökuform eða skál með plastfilmu og hellið músinni í, hyljið og látið standa í ísskáp í a.m.k. 12 tíma.

Hitið mjólkina að suðu. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn rækilega. Setjið smám saman 2/3 af heitri mjólkinni út í hræruna og þeytið. Hellið þessu að lokum út í afganginn af mjókinni og látið hitna - án þess að sjóða. Látið síðast kólna í skál, hyljið og geymið í ísskáp.

Takið músina úr forminu, skerið hana í sneiðar með hníf vættum í snarpheitu vatni. Setjið englasósu á disk, sneiðar af mús ofan á sósuna og skreytið með kiwi, mandarínum og berjum. Sáldrið svolitlu kakói yfir til skrauts og bragðbætis.

Uppskrift úr vorblaði Cuisine Actuelle, 2000


Leggja orš ķ belg

18.05.2012 20:26
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.226, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur