Ísinn:
125 g suðusúkkulaði
4 egg
4 matskeiðar sterkt kaffi
1¼ bolli rjómi
1 msk. kaffilíkjör
½ bolli sykur
Rjóminn:
¼-½ l af rjóma
1-2 msk af rótsterku espressókaffi
hnefafylli af ristuðum möndluflögum
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Þegar það er bráðið, hrærið eggjarauðunum vandlega út í einni og einni í einu og kaffinu líka.
Stífþeytið rjómann og bætið út í hann kaffilíkjörnum.
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið sykrinum smátt og smátt saman við þær.
Hrærið fyrst saman blönduna með súkkulaðinu og rjómann. Hrærið síðan eggjahvítublöndunni saman við.
Fryst í bökunarformi.
Borið fram í smáskálum og skreytt með kaffbætta rjómanum og möndluflögunum.
