2 blöð af matarlími
¼ bolli af köldu vatni
2 bollar af mjólk
1 bolli af sykri
örlítið salt
2 msk. af sítrónusafa
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 bollar af rjóma
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn. Mjólkin, sykurinn og saltið hitað að suðu. Mararlímið leyst upp í heitri mjólkinni.
Mjólkurblandan er kæld nokkuð. Þegar hún er ylvolg er hvítlauknum og sítrónusafanum bætt út í.
Þessi blanda er kæld vel, uns hún rétt byrjar að þykkna eða stífna. Þá er þeyttum rjómanum bætt út í, hrært vel og varlega og blandan loks sett í skál eða bökunarform og fryst.
Þessa uppskrift fékk ég senda frá Gilroy í Kaliforníu
