Sverrir Pįll Erlendsson

http://www.svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Mýs Kristins

18.01.2009 15:15 - 1751 lestrar - Orš ķ belg (0)

 

Hvít súkkulaðimús
250g hvítt súkkulaði
80 ml mjólk
1 tsk vnilluþykkni
3 egg aðskilin
375 ml rjómi
6 msk ástaraldin

Súkkulaði, mjólk og og vanilla hitað yfir vatnsbaði, hrært varlega
kælt í 5 mínútur
eggjarauðum bætt út í smát og smátt, hrært á milli
rjómi þeyttur, blandað varlega út í súkkulaðið
eggjahvítur stífþeyttar, hrært varlega saman við
kælt vel og vandlega
Ef passionfruit, þá smurt yfir og borð fram

Brún súkkulaðimús
500 g súkkulaði
5 dl rjómi
5 egg aðskilin
100 g smjör
vanilla

Í stórum dráttum sama aðferð.


Ávaxtaskál

29.04.2007 09:16 - 3024 lestrar - Orš ķ belg (0)

Ananas
Mangó
Vínber
Jarðarber
Hindber
Kókos.

Brytjað og blandað.

Borið fram með rjóma 


Sśkkulašimśs meš englasósu

20.10.2006 20:25 - 2840 lestrar - Orš ķ belg (0)

Súkkulaðimús með englasósu

Músin:
250 g dökkt suðusúkkulaði, t.d. Lindt
6 ný egg stofuheit
200 g smjör
1 kiwi
1 mandarína
nokkur rifsber

Englasósan:
4 eggjarauður
125 g sykur
50 cl mjólk
1 msk. kakóduft

Látið smjörið bráðna við mjög vægan hita í potti. Veiðið skán ofan af því og látið kólna svolítið.

Brjótið súkkulaðið í smábita og bræðið það varlega í skál í vatnsbaði. Látið það líka kólna dálítið.

Aðskiljið eggjahvítur og rauður. Setjið eggjarauðurnar út í súkkulaðið eina og eina í senn og hrærið hægt og varlega í með sleif.

Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við súkkulaðihræruna - ekki hræra of mikið, rétt láta þetta ná að blandast.

Þekið kökuform eða skál með plastfilmu og hellið músinni í, hyljið og látið standa í ísskáp í a.m.k. 12 tíma.

Hitið mjólkina að suðu. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn rækilega. Setjið smám saman 2/3 af heitri mjólkinni út í hræruna og þeytið. Hellið þessu að lokum út í afganginn af mjókinni og látið hitna - án þess að sjóða. Látið síðast kólna í skál, hyljið og geymið í ísskáp.

Takið músina úr forminu, skerið hana í sneiðar með hníf vættum í snarpheitu vatni. Setjið englasósu á disk, sneiðar af mús ofan á sósuna og skreytið með kiwi, mandarínum og berjum. Sáldrið svolitlu kakói yfir til skrauts og bragðbætis.

Uppskrift úr vorblaði Cuisine Actuelle, 2000


Tiramisu - eins og hśn į aš vera

20.10.2006 20:23 - 2727 lestrar - Orš ķ belg (0)

24 fingurkex (Lady Fingers)
8 eggjarauður
150 g sykur
500 g Mascarpone
10 cl Amarettolíkjör
3 msk. dökkt kakóduft
25 cl expressokaffi
1 msk. skyndikaffiduft

Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til það verður létt og ljósgult. Hrærið saman Mascarpone og Amaretto þar til það verður jafnt og mjúkt og blandið þessu loks öllu saman.

Setjið þriðjunginn af þessari blöndu í skál/form, breiðið úr því og sáldrið yfir það einni matskeið af kakóinu (gott að gera það með tesíu)

Hellið kaffinu í skál, setjið skyndikaffið út í til að styrkja það. Vætið 12 kexkökur í kaffinu, eina í senn, og leggið þær ofan á bönduna í forminu/skálinni.

Setjið nú aftur þriðjung af blöndunni yfir kexið og á ný 12 kaffibleyttar kexkökur, þá eina matskrið af kakói og loks afganginn af blöndunni og afganginn af kakóinu.

Setjið plastfilmu yfir skálina/formið og látið standa í ísskáp 12 tíma. Berið Tiramisu alltaf fram ískalda.

(Í tilbreytingu má setja annan líkjör í stað Amaretto, til dæmis Grand Marnier, kaffilíkjör o.s.frv.)

Uppskrift úr Ítalíublaði Cuisine Actuelle, 2000


Mokkaķs meš kaffibęttum rjóma og möndluflögum

20.10.2006 20:22 - 2849 lestrar - Orš ķ belg (0)

Ísinn:
125 g suðusúkkulaði
4 egg
4 matskeiðar sterkt kaffi
1¼ bolli rjómi
1 msk. kaffilíkjör
½ bolli sykur

Rjóminn:
¼-½ l af rjóma
1-2 msk af rótsterku espressókaffi
hnefafylli af ristuðum möndluflögum

Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.  Þegar það er bráðið, hrærið eggjarauðunum vandlega út í einni og einni í einu og kaffinu líka.

Stífþeytið rjómann og bætið út í hann kaffilíkjörnum.

Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið sykrinum smátt og smátt saman við þær.

Hrærið fyrst saman blönduna með súkkulaðinu og rjómann.  Hrærið síðan eggjahvítublöndunni saman við.

Fryst í bökunarformi.

Borið fram í smáskálum og skreytt með kaffbætta rjómanum og möndluflögunum.


Hvķtlauksķs

20.10.2006 20:20 - 2919 lestrar - Orš ķ belg (0)
2 blöð af matarlími
¼ bolli af köldu vatni
2 bollar af mjólk
1 bolli af sykri
örlítið salt
2 msk. af sítrónusafa
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 bollar af rjóma

Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn. Mjólkin, sykurinn og saltið hitað að suðu. Mararlímið leyst upp í heitri mjólkinni.

Mjólkurblandan er kæld nokkuð.  Þegar hún er ylvolg er hvítlauknum og sítrónusafanum bætt út í.

Þessi blanda er kæld vel, uns hún rétt byrjar að þykkna eða stífna.  Þá er þeyttum rjómanum bætt út í, hrært vel og varlega og blandan loks sett í skál eða bökunarform og fryst.

Þessa uppskrift fékk ég senda frá Gilroy í Kaliforníu

Gundel pönnukökur

20.10.2006 20:19 - 2192 lestrar - Orš ķ belg (0)
Kökurnar
2 egg
2 dl mjólk
240 g hveiti (má setja lúku af hrísmjöli í stað jafnmikils hveitis)
100 g smjörlíki eða 1 dl olía
salt eða sykur að smekk
2 dl mjólk eða sódavatn   

Egg og olía eða kælt bráðið smjörlíki hrært vel saman, 2 dl af mjólk út í ásamt sykri/salti.  Hveitið sett í og hrært kekkjalaust.  Bætt svo út í mjólk eða sódavatni þar til soppan er mátulega þykk. Hæfileg þykkt er mitt á milli pönnukökudeigs og vöffludeigs því Gundel-pönnukökur mega vera svolítið þykkar. Bakað á pönnukökupönnu.

1½ dl romm (með rommbragði, Stroh eða Morgan en ekki Bacardi eða slíkt)
    
Fyllingin
40 g rúsínur
20 g sykurgljáður appelsínubörkur
180 g valhnetur, brytjaðar (ekki of smátt)
1 dl rjómi
120 g sykur
kanill, ½ tsk eða svo

Rúsínur og appelsínubörkur lagt í beyti í romm í sólarhring. Valhnetur saxaðar. Rjómi settur í pott og hitaður að suðu, sykri bætt í og kanil og látið malla dálitla stund við vægan hita. Hnetunum bætt í svo og rúsínunum og berkinum – eftir að rommið hefur verið síað frá. Sé þetta mjög þurrt og tolli ekki saman eins og grautur má bæta ögn af mjólk út í. Tekið af hellu og látið kólna að mestu og þá helmingnum af romminu bætt út í, hrært og geymt. Þegar pönnukökurnar hafa verið  bakaðar er dálítið af fyllingu sett í hverja og eina og þær rúllaðar upp. Halda skyldi þeim volgum.
 
Sósan
2½ dl mjólk
2 msk sykur
vanilla
3 eggjarauður

100 g súkkulaði. Brætt í skál í vatnsbaði.

6-7 msk.sykur
½  bolli kakó
2 ms. hveiti
4 msk mjólk


Mjólkin soðin með sykrinum og vanillunni.  Geymd. Eggjarauðurnar þeyttar vel og hrært út í mjólkurblönduna þegar hún hefur kólnað töluvert.

Þetta allt hrært saman.  Sjálfsagt þarf meiri vökva til að þetta hrærist og verði að þykkum súkkulaðimassa.

Brædda súkkulaðinu blandað saman við og loks vanillumjólkinni. Passið samt að þetta verði ekki of þunnt, þetta á að vera eins og þykkur grautur. Afganginum af romminu bætt út í (og ef til vill ögn til viðbótar)

2 dl af rjóma stífþeyttir og blandð saman við súkkulaðið.

Ein pönnukaka sett á hvern disk og væn sletta af súkkulaðirjómasósu með. Þetta er M J Ö G saðsamt. Og ungverskt.

Pönnukökur meš ķs og sśkkulašisósu

20.10.2006 20:14 - 2507 lestrar - Orš ķ belg (0)
1 pönnukaka á mann

Fylling:  vanilluís

Sósa:

 100-150 g suðusúkkulaði
 ½ dl vatn
 1-2 dl rjómi

Búið til pönnukökur úr venjulegu pönnukökudeigi - nema hafið deigið þykkt svo kökurnar verði þykkar.

Setjið vatnið í lítinn pott og htitð. Súkkulaðið er sett út í og brætt við vægan hita. Setja má örlítið smjör eða ögn af olíu út í. Rjóminn er þeyttur. Þegar súkkulaðibráðin er aðeins byrjuð að kólna er rjóminn settur saman við og hrært vel.

Setjið 2-3 kúlur af vanilluís í hverja pönnuköku. Leggið saman í hálfmána og setjið á disk. Hellið volgri súkkulaðisósunni yfir.

« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur